Lokaleikur sumarsins á móti Áreitni
25 ágúst, 2009 af fctlcBIKARLEIKUR
6 ágúst, 2009 af fctlcSælir
Eins og flestir vita þá erum við komnir í 8 liða úrslitin í bikarnum í ár. Leikurinn er á sunnudaginn við UFC Ögna. UFC Ögni er nýtt lið í utandeildinni í ár og hefur staðið sig mjög vel miðað við það. Þeir eru sem stendur í öðru sæti C-riðills. Í bikarnum hafa þeir unnið:
UFC Ögni – RWS 7-1
UFC Ögni – Kumho 4-3
Þannig að þetta lið virðist vera nokkuð öflugt og er að skora mikið af mörkum 26 í 7 leikjum í deild og 11 í 2 leikjum í bikar.
Við ætlum okkur langt í bikarnum í ár og þurfum því að fá mjög góða mætingu á sunnudaginn kemur og þeir sem komast ekki í kvöld það er skyldumæting á sunnudaginn.
Hvar: Ásvellir, Hafnarfirði
Dagsetning: 9 ágúst, sunnudagur
Mæting: 1800
Andstæðingur: UFC Ögni
Keppni: Bikarkeppnin
Skilyrði: SKYLDUMÆTING
Bongó litli Bongó
8. umferð
4 ágúst, 2009 af fctlcSælir
Næsti leikur er á fimmtudaginn á Ásvöllum í Hafnarfirði. Leikurinn er gegn Kærustunni hans Ara sem er í 5 sæti með 9 stig. Við eigum ennþá möguleika á umspils sætinu og því verðum við að vinna þennan leik til að halda þeim möguleika opnum.
Staður: Ásvellir Hafnarfirði
Mæting: 20:00
Mótherji: Kærastan hans Ara
Crunch Time
21 júlí, 2009 af fctlcÁ fimmtudaginn eigum við leik við FC FAME í 6 umferð deildarinnar. Um er að ræða gríðarlega mikilvægan leik fyrir okkur því að FAME er ði 4. sæti með 10 stig og við sitjum í 5. Sæti með 7 stig. Þrjú efstu liðin eru síðan með 13-15 stig. Fyrirkomulagið er þannig að 3 efstu liðin fara beint í úrslitakeppninna og liðin í 4 sæti spila í umspili um laust sæti. Þannig að við hreinlega verðum að vinna á fimmtudaginn til að eiga möguleika á að taka 4 sætið.
Leikir FAME í sumar:
Nings – Fame 1-1
FC Ice – FAME 1-2
Elliði – Fame 5-3
KHA – Fame 1-2
Áreitni Fame 2-3
Það er ljóst að þessi leikur mun skipta miklu um framhaldið hjá okkur. Þá er einnig mikilvægt að við höfuð þrjú efstu liðin í sjónmáli þar sem þau eiga eftir að spila mikið innbyrðis t.a.m á Elliði eftir að spila við okkur, VJ og Kuhmo.
Þá er Stórleikur við Elliða strax á mánudaginn kemur og vil ég biðja menn um að commenta vhort þeir komist í báða leikina inn á síðunni.
Fimmtudagurinn 23 júlí
Staðsetning: Ásvellir
Mæting: 20:00
Mótherji: FC FAME
Mæta tímanlega
Mánudagurinn 27 júlí
Staðsetning: HK völlur
Mæting: 19:30
Mótherji: Elliði
Mæta tímanlega
Það er ljóst að þessir næstu tveir leikir eru gríðarlega mikilvægir og vonandi ná menn að mæta í þessa leiki. Við þurfum á öllu okkar að halda til að klára þessa leiki.
Allir að skrá sig hér www.fctlc.wordpress.com
Áfram í Bikarnum
20 júlí, 2009 af fctlcBikarleikur
Það voru frábærar aðstæður sl. miðvikudag þegar TLC mætti liði SÁÁ í 16 liða úrslitum Bikarkeppninnar, 15 stiga hiti og hægur andvari.
Mætingin var góð en alls létu 15 sjá sig og var byrjunarliðið eftirfarandi;
Binni
Svavar – Jón Fannar – Garðar – Örvar
Siggi H -Sæmi
Sverrir Óli Már Einar
Hrafn
Varamenn: Höski, Róbert, Raggi, Finnur
Það sem kom einna helst á óvart við uppstillingu liðsins að þessu sinni var sú staðreynd að Róbert var á tréverkinu en þetta mun vera í fyrsta skipti í 10 ára sögu TLC sem Róbert byrjar útaf. Dagskipunin var að vera þéttir tilbaka, halda boltanum niðri og nýta breiddina.
TLC tók yfirhöndina strax í upphafi leiks og boltinn rúllaði vel á milli manna. SÁÁ komust varla yfir miðju fyrstu 15 mín leiksins. Þrátt fyrir að vera mikið með boltann náðum við ekki að skápa okkur almennilega færi, mikið um hálffæri og skot fyrir utan teig. Á 21 mín uppskárum við síðan vítaspyrnu þegar Örvar var felldur í vítateig SÁÁ. Mjög vel útfærð sókn þar sem við höfðum spilað frá aftasta manni og Örvar kom í overlap og var felldur inní teig og réttilega dæmd vítaspyrna. Á punktinn fór Jón Fannar en hann lét verja frá sér spyrnuna sem var í slakari kanntinum (en það mun allt hafa verið boltanum að kenna).
Það var því nokkuð gegn gangi leiksins sem SÁÁ skoruðu og komust yfir á 27 mín. Mjög vel að verki staðið hjá SÁÁ, góður bolti fyrir markið og miðjumaður þeirra náði að stinga sér inn fyrir vörnina og reka stóru tánna í tuðruna og í blá hornið óverjandi fyrir Binna í markinu. Markið kom eins og köld vatnsgusa framan í TLC menn sem höfðu framm að þessu ráðið leiknum algjörlega. Bikarinn hefur reynst TLC erfiður ljár í þúfu í gegnum árin og voru menn farnir að velta fyrir sér verður þetta enn eitt árið sem TLC dettur út í fyrstu umferð.
Menn voru hins vegar engan veginn að þeim buxunum að gefast upp. Hrafn sem hafði flogið hátt í sínum fyrsta leik í vikunni á undan þurfti að fara útaf vegna meiðsla og Raggi (bróðir hans Svavars) kom upp á toppinn í staðinn fyrir hann. TLC héldu uppteknum hætti og pressuðu vel Sverrir og Óli Már voru nálægt því að jafna metinn. En það var síðan, eins og oft áður, Óli Már sem dróg vagninn og jafnaði með stórglæsilegu marki af 23 metra færi. Markið kom á góðum tíma 2 mín fyrir hálfleik og akkúrat það sem við þurftum áður en flautað var til seinni hálfleiks.
Staðan 1-1 í hálfleik og í raun hefðum við átt að vera 1-2 yfir en við náðum ekki að nýta okkur yfirburðina sem skildi.
Tvær breytingar voru gerðar í hálfleik, Höski kom á hægri kanntinn fyrir Sverri og Finnur kom inn í bakvörðinn fyrir Svavar. Seinni hálfleikur byrjaði eins og sá fyrri endaði, SÁÁ að elta skugga. EFtir 4 mín í seinni hálfleik var Óli Már aftur á ferðinni með mark af dýrari gerðinni. Óli fékk þá sendingu inn fyrir frá Sigga, dripplaði að endamörkum þar sem hann sólaði tvö á endalínunni og sett´ann síðan fráhjá markmanninum. Einkar glæsilegt mark hjá Óla Má. Eftir þetta datt tempóið aðeins niður en TLC fékk 3 fín færi til að klára leikinn, Raggi, Sverrir og Óli Már fengu allir færi til að innsigla sigurinn en inn vildi boltinn ekki. SÁÁ reyndi að pressa aðeins undir lokinn en höfðu ekki erindi sem erfiði.
Heilt yfir var þetta solid leikur hjá TLC og menn virkilega að spila vel. Mun meiri barátta og stemning var í þessum leik en undanfarna leiki og er þetta það sem koma skal í næstu leikjum. Vörnin var með sterk með Garðar og Jón Fannar í fararbroddi, hrikalega gott að fá Örvar aftur tilbaka og má segja að hann hafi eignað sér vinstri bakvarðarstöðuna eftir frammistöðuna í þessum leik, Svavar og Finnur voru fínir í h.bakv, Sæmi og Siggi voru rock solid á miðjunni og bundu vörn og sókn mjög vel saman og náðu að dreifa spilinu vel og stppa fjölmargar sóknir, Óli Már var sem fyrr óstöðvandi og SÁÁ réðu lítið við hann ásamt því að skora tvö frábær mörk var Óli Sívinnandi og hlaupandi allan leikinn, Sverrir var ekki í sinni uppáhaldsstöðu en komst vel frá leiknum og hefði átt að setja eitt mark, Einar var duglegur, Höski barðist vel, Hrafninn meiddist fljótlega og kom ekki mikið við sögu. Raggi kom með fína innkomu og er í frá bæru formi, verður góð viðbót í hópinn sem er orðinn ansi þunnuskipaður af sóknarmönnum. Róbert kom mjög sterkur inn síðustu 15 mín.
Eina sem vantaði var að klára færin betur til að klára leikinn en það skiptir ekki málið þar sem við unnum góðan sigur og erum komnir áfram í 8 liða úrslitin ásamt; Vængjum Júpíters, Elliða, FC Ögna, Haukar U, Vatnaliljum, Dufþak og Nings/Vatnsberar. Á þessari stundu er enginn óskamótherji, væri bara fínt að fá heimaleik.
Nú bara að gíra sig upp fyrir næstu tvo leiki 23 júli gegn FC FAME og 27 júlí gegn Elliða. Tveir gríðarlega mikilvægir leiki í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni en þeirri baráttu er hvergi nærri lokið.
Bongó litli Bongó
Binnster
Mikilvæg 3 stig á Framvelli
16 júlí, 2009 af fctlcSælir drengir.
Í 5. umferð mættum við Nings mönnum á Framvellinum þann 8. júlí í blíðskaparveðri. Eins og við mátti búast var þetta hörkuleikur enda Nings menn á svipuðu róli og við í deildinni og höfðu allan hug á að ná 3 stigum. Golfmót útum allt var mikil blóðtaka fyrir okkur en um 8 manns vantaði vegna þessarar bolta íþróttar
Hinsvegar létum við það ekkert á okkur fá og skiluðum 3 stigum í hús og þeir sem voru að spila sinn fyrsta leik í sumar stimpluðu sig vel inn.
Við lágum töluvert mikið tilbaka í þessum leik og fengum mikið af sóknum á okkur. Nings menn áttu yfir það heila fleiri færi en Óli C stóð hinsvegar vel fyrir sínu á milli stanganna og varði oft mjög vel. Við beittum mikið af löngum sendingum fram og var lagt upp með að nýta vængina betur en í fyrri leikjum. Uppúr því sköpuðust færi af og til sem við náðum ekki að nýta.
Á 12. mínútu komust Nings menn yfir eftir klafs í okkar teig eftir hornspyrnu. Í stað þess að við náum að hreinsa útúr teig fór boltinn í samherja og skoppaði beint fyrir framan markið þar sem Nings maður kom og setur hann frír í markið. Við þetta má segja að við höfum aðeins tekið við okkur en á 20. mínutu jafnar Hrafn með góðri vippu yfir markmanninn eftir góða stungusendingu. Stuttu seinna átti hann svipað færi en vippaði þá aðeins framhjá markstönginni. Síðan á 44. mínútu skorar Gummi S svona líka geggjað mark þar sem hann contrar boltann með vinstri beint í samskeytin rétt við vítateigslínu. Eftir þetta mark féllum við aftar á völlinn og Nings menn lágu á okkur. Þeir fengu allt of mörg færi en allt kom fyrir ekki. Mikilvæg 3 stig í hús.
Tilnefningar til manns leiksins
Óli C
Garðar
Villi Eiríks
Hjalti
Hrafn
Gummi S
Staðan á kosningu manns leiksins hingað til
1. umferð: TLC – FC Ice = Trausti
2. umferð: TLC – Vængir = Óli Steph
3. umferð: TLC – Kumho = Óli Már
4. umferð: TLC – Metro = Óli Már
Bikarinn, 16-liða úrslit; TLC – SÁÁ
13 júlí, 2009 af fctlcNæsti leikur TLC er á miðvikudaginn kemur gegn SÁÁ í 16 liða úrslitum bikarkeppninnar. Lið SÁÁ hefur bætt við sig góðum mannskap frá fyrra ári og eru nú í 2. Sæti B riðils með 10 stig. Hafa þeir unnið lið eins og Dufþak (6-0), Hómer (4-2) og FC Dragon (5-0) auk þess sem liðið vann Hjörleif örugglega í 22-liða úrslitum bikarsins. Þannig að ljóst er að um hörkuleik verður að ræða.
Við þurfum að fylgja á eftir góðum 2-1 sigri gegn Nings í síðustu umferð. Það er kominn tími á að TLC geri almennilega atlögu að bikarnum.
Strákar mætum nú tímanlega og tökum upphitun svona til tilbreytingar fyrir leikinn og náum upp Bongó stemningu, veðurspáin er klassi: þurrt að kalla, 12-14 stiga hiti og gola. Sá sem er með búningana plís mæta á réttum tíma.
Allir að skrá sig hér
Staðsetning: HK- völlur í Fagralundi Kópavogi
Tímasetning: 19:00
Mæting: 18:15
Dagskipun: stemning, barátta og samheldni.
Bongó litli
Kosning á manni leiksins móti Metró
6 júlí, 2009 af fctlc5 umferð: TLC – Nings
6 júlí, 2009 af fctlcLeikurinn er á Framvellinum á miðvikudaginn 8.júlí og hefst kl 19.00
Mæting síðasta lagi kl 18.15
Allir að melda sig til leiks.
Við ætlum okkur að stimpla okkur inn í þetta mót !
Andleysi á Framvelli + kosning á manni leiksins
29 júní, 2009 af fctlcTLC mætti liði Kumho síðastliðinn miðvikudag á gervigrasi stórveldisins Fram. Bjuggust menn við hörkuleik þar sem Kumho hafa komið öllum að óvörum og eru í toppbaráttunni í okkar riðli og TLC menn staðráðnir í að sýna hvað í okkur býr eftir baráttujafntefli gegn Vængjunum. Óhætt er að segja að TLC menn voru gjörsamlega ekki mættir hugarfarslega séð því andleysi, metnaðarleysi, hugarfarsleysi,getuleysi…….. ríkti okkar leik frá byrjun. Kumho tóku öll völd á vellinum og voru mun sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og skoruðu tvö mörk með þriggja mínútna millibili eða á 34. og 37. mín leiksins og skiptir engu máli hverjir skoruðu þau mörk en annað þeirra var gjöf af okkar hálfu. Við náðum svo að klóra í bakkann rétt fyrir hálfleik með marki frá varnarjaxlinum Jóni Fannari sem kvittaði fyrir að hafa misst boltann í einu af mörkum Kumho. Markið var fyrsta merki um iðjusemi af okkar hálfu í leiknum þar sem Jón sýndi baráttuhug inn í markteig Kumho og negldi boltann í netið af stuttu færi, gjörsamlega óverjandi. Dauft var yfir mönnum í hálfleik en allir voru hinsvegar sammála um að við myndum nú ekki fara inn á völlinn með sama hugarfar og fyrri hálfleikur reyndist. Tvær skiptingar litu dagsins ljós þar sem Ólarnir tveir Steph og Már komu inn á miðjuna fyrir Einar og Sverri og breyttu gangi svo um munaði J. Barátta Óla Márs á miðjunni ásamt vel útfærðum sendingum gerðu það að verkum að TLC komst strax inn í leikinn og náðu nokkrum góðum sóknum. Fljótt varð kappsemin samt full mikil þar sem ein góð tveggja fóta tækling ala Óli Már leit dagsins ljós en allir sluppu heilir frá þeim ósköpum (ekki að sjá að Óli hafi verið meiddur í marga mánuði). Steffarinn sýndi nokkra spretti en vantaði herslumuninn upp á að hann slyppi inn fyrir og næði að halda uppi þráðnum frá gullfallegu marki hans gegn vængjunum. Þrátt fyrir að okkar leikur hafi batnað til muna í seinni hálfleik náðu Kumho að setja tvö mörk til viðbótar á okkur og endaði leikurinn 1-4. Heilt yfir mjög bragðdaufur leikur af okkar hálfu og þurfum við að hysja upp um okkur brækurnar fyrir næsta leik. Sóknir okkar þurfa að vera mun beittari og betur útfærðar. Hefur sýnt sig að kýlingar upp miðjuna er ekki að ganga upp því lítið sem ekkert hefur komið út úr því í öllum þeim leikjum sem við höfum leikið í sumar.
Tilnefningar til mann leiksins eru að mínu mati enginn leikmaður en ég setti 4 leikmenn sem voru svona næstum því að spila fótbolta:
Maður leiksins:
Siggi Hermanns
Óli Már
Jón Fannar
Ingi
Liðið var þannig skipað:
Mark: Binni
Vörn: Garðar-Siggi-Jón F.-Ingi
Miðja: Einar-Sverrir-Stebbi-Siggi Steindórs-Hjalti
Sókn: Gummi S
Varamenn: Óli Steph,Óli Már,Svavar,Daníel,Sæmi


