Archive for apríl, 2006

Æfingaleikur á sunnudaginn

28 apríl, 2006

Það er kominn annar æfingaleikur í sigtið, á sunnudaginn kl. 20 á móti FC Ice. Þetta verður 2x 40 mínútur og því er þetta fínt fyrir okkur að testa okkur aðeins í formi og gegn skítsæmilegu liði. Þetta verður á Framvellinum og það er mæting hálftíma fyrir leik. Ekki gera ráð fyrir því að við notum búninga, þó við gerum það kannski.
 
Þeir sem eru staðfestir:
 
Ég (Róbert)
Nóri
Guðjón Ármann Guðjónsson (nýr maður – hokinn af reynslu)
Stefán Helgi Jónsson (nýr maður – spilaði alla leiki með Val á miðjunni í fyrra í Úrvalsdeildinni og hampaði bikarmeistartitlinum)
 
Við verðum eitthvað að hringja í menn um helgina þar sem þetta er að koma seint en endilega meldið ykkur inn og reynum að fá decent mætingu í þetta og förum að koma okkur í form.
 
Það er frí á mánudaginn og því væri kannski moment að taka 1-2 öllara eftir leikinn. Hvernig hljómar það ?
 
bkv. Róbert

Riðlar í Utandeildinni 2006

27 apríl, 2006

Þá eru riðlarnir fyrir utandeildina komnir.

Heildarfjöldi liða er 36. Því var tekið á það ráð að raða niður í 3 riðla og hvert lið spilar þá 11 leiki, fyrir utan bikar og úrslitakeppni. Liðum var skipt í 2 hópa, miðað við efri og neðri deild. Styrkleikaröðun var því fengin með því að draga úr þessum pottum í sitt hvoru lagi. Riðlarnir ættu því að vera álíka sterkir.

Riðill A
Vængir Júpiters
Hjörleifur
Dufþakur
Henson
Mannsi
Kumho Rovers
Pungmennafélagið Gulla
Geirfuglar
Ac Möllet
Hómer
Fc Keppnis
BR

Riðill B
Puma
RC Collins
Fc CCCP
Melsted
Kóngarnir
Knattspyrnufélagið Elliði
Metró
Hunangstunglið
Vatnaliljur
G&T
Fc Ice
Svalur

Riðill C
Áreitni
Fc Fame
Fc Reynir
Fc FameNings
Dragon
Fc Moppa
TLC
Vatnsberar
Stormur
Kærastan hans Ara
Gismo
Strumpar

TLC leikur því í C-riðli í sumar. Það eru þarna nokkur lið sem við höfum spilað við áður. FC Fame og FC Reynir voru með okkur í riðli í úrslitakeppninni. FC Moppan höfum við spilað oft við og einnig Nings.

Þetta virðist vera nokkuð jafnt skipt í riðla og verður gaman að sjá hvernig þetta endar. 

Æfingar komnar á hreint (Uppfært)

26 apríl, 2006

Við erum komnir með æfingatíma í Risanum. Miðvikudagar kl. 22:00 í klukkutíma. Við munum síðan hugsanlega færa hann á einhvern betri tíma fljótlega.

Ég minni menn á leikinn í kvöld og vona að sem flestir geti mætt.

*Uppfært*
Leikurinn á laugardaginn verður ekki.

bkv. Róbert

Æfingaleikur á móti Oldboys Þróttar

25 apríl, 2006

Leikur á móti Oldboys Þróttar kl. 20:30 á gervigrasinu í Laugardal, miðvikudag. Mæting kl. 20:15, leikurinn er 60 mínútur.

Menn verða að skrá sig.