TLC spilaði sinn fyrsta leik í Utandeildinni í gærkvöldi. Leikurinn átti að fara fram á Tungubökkum en vegna veður var ekki hægt að spila þar, það náðist að redda Egilshöllinni í staðinn.
Byrjunarlið TLC var:
Gísli í markinu
Örvar, Svavar, Haukur Jóns og Reynir í vörn
Arnór, Óli Már, Stebbi Jóns og Hjalti á miðjunni
Grímur og Gummi voru í sókn
Þá komu Gunni, Ívar, Halli og Óli C allir inná og Addi, Binni, Óli Steph voru á bekknum og það voru Stebbi og Robbi sem sáu um að vera stjórarnir.
Fyrsta markið skoraði Gummi eftir flotta sendingu inn fyrir frá Arnóri. Eitthvað gekk illa hjá varnarmanni og markmanni að koma boltanum í burtu og komst Gummi einn í gegn og skoraði.
FC Fame fengu svo vítaspyrnu sem fór í stöngina og svo út þar sem leikmaður FC Fame var mættur og hann skoraði en markið var réttilega dæmt af þar sem hann var kominn inn í teig áður en skotið var á markið.
FC Fame náðu samt að jafna með flottu marki. Boltinn barst af hægri kanti (þeirra) og sóknarmaður þeirra stakk sér fram fyrir varnamann TLC og skoraði.
Undir lok fyrri hálfleiks átti Óli Már góðan sprett með boltann og gaf á Hjalta sem gerði vel átt flott skot fyrir utan teig í fjær hornið. 2-1 fyrir TLC í hálfleik.
Seinni hálfleikurinn var í algjörri eign TLC fengum fullt af færum en eitthvað gekk illa á nýta þau. Það var svo Gummi sem kláraði leikinn þegar hann setti aukaspyrnu frá Óla Má í netið af stuttu færi.
Frábær byrjun hjá TLC og gott að vera með svona stóran og góðan leikmannahóp.
Stefnan er svo tekin á að gefa mönnum P (fyrir plögger, svipað og m-in í mogganum). Þurfum aðeins að hugsa þetta en stefni á að henda þessu inn seinna í dag eða á morgun
Markaskorarar og stoðsendingar:
1: Gummi með mark og Arnór með stoðsendingu.
2: Hjalti með mark og Óli Már með stoðsendingu.
3: Gummi með mark og Óli Már með stoðsendingu.