Archive for júní, 2006

Árshátíð Forstjóra Íslands

28 júní, 2006

Þá er komið að hinni árlegu Viðeyjarferð Forstjóra Íslands. Verður hún haldinn í Viðey laugardaginn 15. júlí 2006. Það er mikilvægt að taka þennan dag frá í geðveikina. Í ár verðum við í Skálanum og því verður ekki til neins sparað í ár.

Menn verða að melda sig um það hvort þeir mæti eða ekki og ef menn komast ekki þarf að koma löggild útskýring á því.

Verðinu verður ekki stillt í hóf eins og önnur ár. Þetta verður fok dýrt og því er eins gott fyrir menn að byrja að safna. Kostnaðurinn á mann verður 3.000 kr þannig að menn verða að fara að sleikja upp mömmu og pabba.
Ég vill biðja menn um að leggja þennan 3.000 kall inn á 1158-26-3131 kt:030179-2189 um leið og þeir staðfesta komu sína. Og endilega setjið nafnið ykkar í útskýringu. En fimm fyrstu sem leggja inn á mig fá verðlaun og því er mikilvægt að menn verði snöggir. En þar sem ég er búinn að leggja inn á mig sjálfan verða það bara 4 fyrstu.

Og hver er madurinn?
Grímur Garðarsson.

Æfing í kvöld

28 júní, 2006

Það er æfing í kvöld kl. 20:30 til 22:00.

Allir að skrá sig.

TLC 3 – Geirfuglar 2

26 júní, 2006

TLC eru ekki beint frægir fyrir að slá í gegn í Bikarnum í Utandeildinni en í gærkvöldi unnu þeir sigur á Geirfuglum 3-2 á Leiknisvellinum. Staðan í hálfleik var 2-1 fyrir TLC.

Byrjunarlið TLC var skipað:
Gísli í markinu
Örvar, Svavar, Óli C og Reynir í vörninni
Stebbi var varnarsinnaður miðjumaður
Óli Már, Haukur og Hjalti voru á miðjunni
Grímur og Gummi voru frammi.

Á bekknum voru Finnur, Binni, Addi og Robbi.

TLC byrjaði leikinn betur en fengu snemma á sig mark úr skyndisókn Geirfugla. Leikmaður Geirfulga slapp í gegn þegar varnarmenn TLC reyndu að veiða hann í rangstöðu og fannst þeim hafa gert það en dómarinn var á öður máli.
Gummi skoraði svo mark fyrir TLC eftir hælspyrnu frá Hauki.
Hjalti fór svo skömmu seinna útaf meiddur og þá kom Finnur í bakvörðin og Reynir færði sig framar á völlinn.

Það var svo Óli Már sem skoraði annað mark TLC beint úr aukaspyrnu og hefði átt að fá annað mark skráð á sig þegar hann tók aðra aukaspyrnu þar sem boltinn fór inn fyrir línuna.

Staðan 2-1 í hálfleik og TLC betri aðilinn í leiknum. TLC komst svo í 3-1 þegar Reynir skoraði af stuttu færi eftir glæsilega sprett hjá Óla Má upp völlinn. Reynir gerði allt rétt, tók sér góðan tíma og setti boltann á réttan stað fram hjá varnarmönnum og markmanni Geirfugla.

Geirfulgarnir skoruðu svo annað mark úr horni eftir klafs í teignum.

TLC fékk fullt af færum í seinni hálfleik en nýttu færin ekki nógu vel og því var óþarfa spenna í lokin á leiknum. En TLC fór með sigur af hólmi og er því komið í 3 umferð bikarsins.
Geirfulgarnir voru frekar grófir og völlurinn var óvenju drullugur og var eins og menn höfðu verið að vinna á bílaverkstæði eftir leikinn. Sorpan sér greinilega ekki um að þrífa bíldekkin áður en þau eru tætt niður og sett á gervigrasvellina, ekki nema að það svona mikið mengun í Breiðholtinu.

Markaskorarar og stoðsendingar:
Gummi og Haukur
Óli Már úr aukaspyrnu
Reynir og Óli Már.

Bikarinn

22 júní, 2006

Þá er komið að fyrsta leik TLC í bikarnum í ár.

Leikurinn er á sunnudaginn á Leiknisvelli kl. 19:30 á móti Geirfuglunum. Mæting kl. 18:30.

Æfing í kvöld

21 júní, 2006

Æfing í kvöld í Risanum í Hafnarfirði. Æfing byrjar kl. 21:00 og er búin kl. 22:00, þeas æfing eftir leikina á HM í dag.

Allir að skrá sig.

Minni svo á næsta leik sem er á sunnudaginn, man ekki hvar og kl. hvað.

TLC 5 – FC Reynir 1

19 júní, 2006

TLC vann FC Reynir á KR-vellinum í 4. umferð utandeildarinnar í gærkvöldi. Leikurinn endaði 5-1 fyrir TLC eftir að FC Reynir höfðu komist yfir. Þá var staðan 2-1 í hálfleik.

Byrjunarlið TLC var:

Gísli í markinu
Örvar, Andrés, Haukur Jóns og Reynir voru í vörninni
Arnór, Óli Már, Hjalti og Grímur voru á miðjunni
Haukur Hauks og Gummi voru í sókninni.

Góð mæting var og því voru alls 9 varamenn á bekknum. Allir komu þeir inná en það voru: Ívar, Óli C, Ægir, Finnur, Halli, Sigþór, Addi, Davíð og Brynjar.

TLC voru betri aðilinn í leiknum en þrátt fyrir það komust FC Reynir yfir með marki úr óbeinni aukaspyrnu úr vítateig TLC.
Óli Már náði svo að jafna stuttu seinna og svo skoraði Hjalti beint úr aukaspyrnu skömmu fyrir hálfleik eftir að brotið hafði verið á Óla Má fyrir utan teig.

Staðan 2-1 í hálfleik og TLC að spila góðan fótbolta. Staðan var svo 3-1 á 50 mín þegar Haukur setti í boltann í netið eftir góða sendingu frá Ívar á hægri kantinum.
Grímur kom svo TLC í 4-1 með góðum skalla eftir aukaspyrnu frá Óla Má. Haukur setti svo síðasta markið á 62 mínútu eftir góða sendingu frá Grím inn fyrir vörn Reynismanna.

TLC spilaði góðan botla og allir varamenn fengu að koma inná. Góð mæting skilaði sér svo sannarlega og mjög mikilvægur sigur á sterku liði FC Reynis, þó svo að þetta hafi greinilega verið slappur dagur hjá þeim.

Vörnin var góð og aldrei nein hætta, Andrés stjórnaði vel og mikilvægt að hafa svona reynslu mikinn leikmann í hópnum, frábær viðbót. Miðjan var með gott spil og dreifði boltanum vel. Þá var sóknin með Hauk og Gumma alltaf ógnandi og eru þeir nú markahæstir báðir með 4 mörk.

Markaskorarar og stoðsendingar:
1. Óli Már, man ekki stoðsendinu
2. Hjalti úr aukaspyrnu
3. Haukur og Ívar
4. Grímur og Óli Már
5. Haukur og Grímur

TLC – FC Reynir

15 júní, 2006

TLC mætir FC Reynir á sunnudaginn, 18. júní. Leikurinn er á gervigrasi KR og byrjar kl. 18:00 og því er mæting kl. 17:00.

FC Reynir eru búnir að spila tvo leiki á tímabilinu og vinna einn og gera jafntefli í einum. Þeir unnu Nings 4-1 og gerðu 3-3 jafntefli við FC Fame.

TLC hefur einu sinni spilað við FC Reynir og var það í úrslitakeppninni í fyrra. FC Reynir unnur okkur 3-2 og bundu því enda á keppnistímabilið í fyrra.

Allir að skrá hvort þeir komast eða ekki.

Æfing í kvöld

14 júní, 2006

Æfing í kvöld í Risanum. Mæting kl. 20:30 og erum með tíma til kl.22:00.

Allir að skrá hvort þeir komist. 

TLC 2 – Strumpar 4

14 júní, 2006

Fyrsta tap TLC á tímabilinu er staðreynd. TLC mætti Strumpunum á Tunubökkum í gærkvöldi. Leikurinn endaði 4-2 fyrir Stumpunum. Þeir komust í 4-0 en við náðum að gera markatöluna aðeins skárri með því að setja tvö mörk í seinni hálfleik.

Því miður var mjög slæm mæting og menn voru einnig að mæta mjög seint. Þetta er eitthvað sem við verðum að laga því án sæmilegrar upphitunar eru menn ekki að mæta rétt stefndir í leiki. Við höfum fengið á okkur 6 mörk fyrstu 30 mín í síðustu tveimur leikjum. 

Byrjunarlið TLC var:
Gísli í markinu
Binni, Svavar, Halli og Finnur voru í vörninni
Óli Steph, Hjalti, Stebbi og Reynir voru á miðjunni
Gummi og Örvar voru í sókninni.

Varamenn TLC voru Ægir og svo kom Addi í seinni hálfleik. Þá vantaði Stebba þjálfa en hann sagðist ætla að koma en mætti svo ekki. Skömmustuleg hegðun.

Staðan var 3-0 í hálfleik og þá reyndum við aðeins að breyta leikskipulaginu. Gekk aðeins betur en menn voru bara ekki að spila vel. Þeir komust svo í 4-0 áður en Hjalti skorar úr horni og setti Stebbi eitt eftir gott spil.

Markaskorarar og stoðsendingar:
1. Hjalti og Stebbi
2. Stebbi og Reynir

12 júní, 2006

TLC mætir Strumpunum á morgun (Þriðjudag) á Tungubökkum. Leikurinn byrjar kl. 19:30 og því er mæting kl. 18:30.

Strumparnir eru búnir að vinna einn leik og tapa einum. Þeir unnu Gismó 4-1 og töpuðu fyrir, liðinu með hið skemmtilega nafn, Kærastan hans Ara 4-2.

Þá unnum við þá 3-2 í erfiðum leik í fyrra í deildinni og 5-1 í úrslitakeppninni 2004.

Allir að skrá hvort þeir komast eða ekki.