TLC spilaði við Áreitni á mánudaginn. Leikurinn endaði 1-1 eftir að Áreitni hafði komist í 1-0.
Byrjunarlið TLC var:
Gísli í markinu
Binni, Sigþór, Svavar og Örvar voru í vörn
Reynir, Óli Már, Óli C og Finnur voru á miðjunni
Gummi og Arnór voru í sókninni.
Á bekknum voru svo Grímur, Guðjón, Halli, Ægir og Addi. Allir varamenn komu við sögu í leiknum.
Áreitni byrjaði leikinn betur og voru hættulegri en TLC. TLC gekk illa að halda boltanum og það endaði þannig að Áreitni skoruðu eftir sókn upp hægri kant TLC. Staðan var 1-0 í hálfleik og TLC að spila illa.
Allt annar kraftur kom í leik TLC í seinni hálfleik og var spilað mun framar á vellinum. TLC sóttu mikið í seinni hálfleik en illa gekk að brjóta niður þétta vörn Áreitni. Áreitni áttu svo nokkrar skyndisóknir sem þeir hefðu hæglega getað skorað úr.
Það fór svo þannig að Guðjón skoraði eftir hornspyrnu hjá TLC, Guðjón átti fast skot fyrir utan teig eftir klafs í teignum eftir hornspyrnuna. Ekki gafst þó tími til að krækja í öll 3 stigin.
Lélegur leikur hjá TLC en hefðu samt getað stolið sigri en markmaður Áreitni varði oft mjög vel.
Mark og stoðsendingar:
Guðjón og veit ekki hvernig boltinn datt fyrir hann.