Archive for ágúst, 2006

10.umferð

31 ágúst, 2006

Sælir

þá er komið að 10. og næst seinustu umferð riðlakeppninnar þegar TLC mætir Moppunni á LEiknisvelli nk sunnudag þann 3.sept.

Leikurinn hefst kl 21:00 og mæting því 20:00. Með sigri tryggjum við okkur farseðilinn í 8-liða úrslitin í ár, við þurfum 3 stig til að vera öruggir að lenda ekki neðar en í öðru sæti.

Moppan er 9 sæti riðilsins með 10 stig og datt úr bikarkeppninni í vikunni þegar liðið tapaði 2-1 fyrir Elliða. Við þekkjum ágætlega til Moppunar og höfum spilað við þá nokkrum sinnum og ég held að við höfum aldrei unnið þá, annars er Örvar með tölfræðina á hreinu.

Sem sagt sigur gæti létt mikilli pressu af okkur fyrir lokaleikinn og því nauðsynlegt að fá góða mætingu líkt og undanfarna tvo leiki. Allir að melda sig hér.

Æfing 30.09

29 ágúst, 2006

Sælir

Æfing kl.20:30 í Risanum á morgun, miðvikudag. Næsti leikur er á sunnudaginn kemur og því mikilvægt að taka eina æfingu fyrir hann. Mætingin var afar döpur í seinustu viku, reynum að ná sömu mætingu og við gerðum fyrir tveim og þrem vikum síðan.

Allir að melda sig inn hérna

Æfing 23.08

22 ágúst, 2006

Æfing kl.20:30 í Risanum á morgun miðvikudag. Það var frábær mæting á seinustu æfingu og einnig í leikinn og nú er að halda því áfram. 

Allir að melda sig inn

Baráttusigur gegn Vatnsberum

22 ágúst, 2006

TLC tók stórt skref í átt að úrslitakeppninni og efsta sæti C-riðils með góðum 4-2 sigri á Vatnsberum í gærkvöldi. Aðstæður voru allar hinar bestu, blíðskapar veður og fínn völlur.

TLC var á hælunum fyrstu 15mín og eftir að hafa fengið slysalegt mark á sig hresstust leikmenn TLC heldur betur. Grímur skoraði jöfnunarmark TLC úr glæsilegri aukaspyrnu, óverjandi fyrir markmann Vatnsbera. STaðan var 1-1 í hálfleik og þá brá þjálfari liðsins á það ráð að breyta úr 4-4-2 í 4-5-1 og skilaði það strax árangri þar sem TLC sóttu nú mun meira og flæðið var mun betra. Vatnsberar náðu þó að skora fallegt mark af 25-30 metra færi þar sem leikmaður þeirra snéri sér við á punktinum og náði hnitmiðuðu skoti yfir Gísla, 1-2. Reynir jafnaði síðan eftir sendingu frá Ívari, Stebbi skoraði síðan af miklu öryggi úr víti sem dæmt var eftir að Halli hafði skallað að marki. Ægir kláraði síðan leikinn endanlega þegar hann skoraði mjög laglegt mark, eftir sendingu frá Skúla tók Ægir knöttinn á kassann og þrumaði kúlunni á lofti upp í þaknetið. Vatnsberar fengu nokkur færi til að minnka muninn en Gísli varði einu sinni vel og síðan bjargaði súlan okkur einu sinni. Stefán Karls “selurinn” var síðan nálægt því að bæta fimmta markinu við, en heimsklassa markvarsla kom í veg fyrir að Selurinn setti sitt fyrsta eftir langvarandi meiðsli.

Gríðarlega mikilvæg stig í höfn og liðið sýndi mikinn karakter að koma tvisvar tilbaka og vinna góðan sigur. Þetta var mjög erfiður leikur og gegn góðum og líkamlega sterkum mótherja. Það skyggir þó óneitanlega á sigurinn að Gunni meiddist illa eftir 5mín leik á öxl/viðbeini og leikur líklega ekki meira með í ár. EInnig var einn leikmaður Vatnsbera fyrir alvarlegum meiðslu þegar hann ökklabrotnaði þegar hann lenti illa eftir baráttu við Skúla. TLC færði leikmanninum OSTAKÖRFU á spítalan í hádeginu í dag ásamt baráttukveðjum og ósk um góðs bata.

Byrjunarlið TLC var þannig skipað

                    Gísli

Reynir      Óli C         Skúli        Binnletti

Grímur      Arnór      Stefán Helgi  Ívar

             Gaui       Gunni

Varamenn: Ægir, Addi, Halli, Beggi, Stebbi Öxl, Robbi og komu þeir allir við sögu í leiknum.

Mörk og stoðsendingar:

1-1: Grímur og Gaui

2-2: Reynir og Ívar

3-2: Stebbi og Halli

4-2: Ægir og Skúli

Frábær mæting í leikinn og ég vil meina að það hafi skipt sköpum í leiknum, það að geta verið með sex varamenn og skipt vel inná á meðan þeir voru einungis með tvo varamenn og voru farnir að þreytast í lokin. Höldum áfram að mæta vel í leiki og æfingar eins uppá síðkastið, það er mikið skemmtilegra.

9.Umferð

17 ágúst, 2006

Í 9.umferð etur TLC kappi við Vatnsbera, en þeir eru sem stendur í 3.sæti í C-riðlinu aðeins 3 stigum á eftir okkur. FC Reynir er í öðru sæti aðeins 2stigum á eftir okkur, þannig að það er ljóst að um gríðarlega mikilvægan leik er að ræða sem má ekki tapast. Einn besti leikmaður TLC það sem af er sumri Grímur Garðarson hafði þetta að segja “þetta er bara einn af þessum 6 stiga leikjum sem við verðum að klára ef við ætlum okkur eitthvað í þessari keppni” Grímur var nokkuð bjartsýnn á leikinn ” ef við náum góðri mætingu eins og seinast og náum upp Bongónum þá hef ég engar áhyggjur af þessu. En það er alveg ljóst að þetta verður erfiður leikur og við verðum að spila ve”l.

Leikurinn fer fram á Leiknisvelli nk sunnudag (20.ágúst) kl.21:00, mæting kl.20:00.

Koma svo melda sig inn

Viðey 2006- Update

17 ágúst, 2006

Sælir

Áætlað er að fara frá Korngarði í Sundahöfn  kl.1900(http://www.ferja.is/), þannig að æskilegt er að menn mæti uppúr 1845.

Þegar í eyjuna er komið mun síðan Robbi grilla ofan í mannskapinn hina margrómuðu “Stúdíóbörgera”, þá verður TLC bollan á sínum stað (varlega Ívar).

Menn þurfa því að hafa með sér góða skapið og nokkra bjössa eða gosvín. minni menn á reikningsnúmerið vegna þessa : 1158-26-3131 kt:030179-2189.

Sjáumst hressir annað kvöld.

Nefndin

Æfing 16.08.2006

15 ágúst, 2006

Æfing kl.20:30 í Risanum á morgun miðvikudag. Það var góð mæting seinast og nú er að halda því áfram. Væri flott að taka eina æfingu fyrir næsta leik sem er á sunnudaginn kemur gegn Vatnsberunum sem eru 3 stigum á eftir okkur í 3.sæti og því um mjög mikilvægan leik að ræða.

Athygli er vakin á því að leikurinn verður leikinn á Leiknisvelli í stað Tungubakkavelli.

Allir að melda sig inn

Viðey 2006 “mættu eða vertu ferningur”

14 ágúst, 2006

Nú fer að styttist í hina árlegu Viðeyjarferð TLC og allt stefnir í gríðarlega góða mætingu enda vilja menn varla láta þessa ferð framhjá sér fara. Verið er að semja um veðrið og samkvæmt Grími gengur það með ágætum. Þá verður endanleg dagskrá og mæting POSTUÐ hér á síðunni um miðja viku.

þeir sem eru búnir að greiða eru: Grímur, Binnster, Robster, Svavar, Addi, Ívar, Gummi S, Ægir, Gísli

Þeir sem eru búnir að skrá sig en eiga eftir að greiða eru: Finnur, Davíð, Óli C, Óli Steph, Halli, Hjalli, Stebbi Öxl

það að sjálfsögðu enn opið fyrir skráningu hér á netinu og minni menn á reikningsnúmerið vegna þessa : 1158-26-3131 kt:030179-2189

Góður sigur

13 ágúst, 2006

TLC vann góðan sigur á Kærustunni hans Ara í kvöld 4-0.(3-0). Sigurinn var gríðarlega mikilvægur þar sem KHA er einnig í toppbaráttu C-riðils. Leikurinn var spilaður í góðu veðri og prúðmannlega leikinn. TLC spilaði mjög vel í fyrri hálfleik ( á meðan Grímur var inná) og yfirspiluðu KHA á köflum. Í seinni hálfleik datt leikurinn eilítið niður enda sigurinn í raun í höfn, þar sem staðan var 3-0 í hálfleik. Mætingin var mjög fín og var byrjunarliðð þannig skipað :

Gísli

Binni   Baddi   Pabbinn   Reynir

Ívar   Hjalti    Stebbi    Grímur

        Gummi S Gunni

á varamanna bekknum voru: Robbi, Finnur Friðrik, Bergsveinn og Óli C og komu þeir allir við sögu í leiknum.

Mörk og stoðsendingar :

1-0 Gunni – Hjalli

2-0 Gunni – Baddi

3-0 Grímur- Ívar

4-0 Gummi S – Baddi

Nú er bara að halda áfram að mæta vel í leiki og æfingar það sem eftir er og þá tökum við þetta.

8.Umferð

10 ágúst, 2006

Næsti leikur TLC fer fram á sunnudaginn kemur á KR-velli kl.19:30 (ath breyttur leiktími og leikstaður) gegn Kærustunni hans Ara. KHA er í 3.sæti í deildinni tveim stigum á eftir okkur og því um mikilvægan leik að ræða. Mæting er kl.18:30.

Allir að fylgja fordæmi Grímsa og mæta í þennan mikilvæga leik.