TLC tapaði fyrir Elliða 1-2 í hörkuleik í 8liða úrslitum utandeildarinnar á sunnudaginn. TLC komst yfir með vítaspyrnu sem Stefán Helgi afgreiddi örugglega. Elliði jafnaði rétt fyrir lok fyrri hálfleiks eftir að TLC hafði verið sterkari aðillinn í leiknum fram að því. Í seinni hálfleik komst TLC ekki inní leikinn fyrstu 20 mín þökk sé arfaslökum dómara leiksins sem flautaði á hvern einasta andardrátt leikmanna TLC og stal heldur betur senunni. Þegar uþb 15mín voru til leiksloka fékk Gaui sitt annað gula spjald, mjög klaufalegt. Elliði nýtti sér liðsmuninn og skoraði þegar 5-7mín voru eftir og þar við sat.
Þrátt fyrir tapið spilaði TLC þokkalega, sér í lagi í fyrri hálfleik. Sárt að detta út strax í fyrstu umferð eftir að hafa unnið riðilinn nokkuð örugglega. Setja verður spurningamerki við framkvæmd mótsins í ár s.s. Tungubakkar, riðlakeppnin, langt bil fram að úrslitakeppni ofl. Það var bara eitthvað við mótið í ár (t.d. framangreindir hlutir) sem gerði mótið ekki eins spennandi, kannski er ég bara einn um þá skoðun. TLC koma sterkir til leiks að ári það er klárt.
Nú er bara að gera tímabilið upp með hinni árlegu árshátið.


