Sælir strákar.
Óli reddaði okkur aftur inn í Risann við Kaplakrika og einnig betri æfingartíma. Gefum honum gott klapp fyrir það.
Fyrsta æfing er annað kvöld kl.21 og svo verðum við vikulega á þessum tíma.
Framæfingarnar eru því hættar.
Þetta er toppaðstaða í Risanum og engin afsökun fyrir því að mæta ekki nema þá, limafallasýki eða dauði.
Vinsamlegast tilkynnið hvort þið mætið eða ekki.
Koma svo strákar… stutt í mót og því nauðsynlegt að fara að hreyfa sig.
Stefnan er svo sett á æfingaleik í næstu viku, 4-5 æfingaleiki fyrir mót og einnig bongópartý fyrir mót.
Kveðja,
Hjalti Gylfason


