Archive for júní, 2007

Æfing miðvikudagskvöld

26 júní, 2007

Allir að mæta í Risann kl. 21, Miðvikudaginn 27. júní 2007

Melda sig inn TAKK

TLC 7 – Geirfulgar 1

25 júní, 2007

Flott veður var á Tungubökkum í gærkvöldi þegar TLC lagði Geirfugla af velli.

Byrjunarliðið var:

Gísli
Óli C Svavar Baddi Grímur
Ívar Siggi He Hjalti Siggi Sæ
Gunni Trausti

Varamenn voru: Örvar, Stebbi, Finnur og Davíð, allir komu við sögu í leiknum.

Mörkin skoruðu
1. Ívar
2. Gunni
3. Siggi Sæ
4. Óli Már
5. Gunni
6. Gunni
7. Gunni

Ætli maður verður nú ekki að gefa Gunna mann leiksins, svona fyrst hann skoraði 4 mörk.

Annars verðum við að fara nýta færin betur, vorum búinir að fá 10 dauðafæri þegar þeir skora sitt fyrsta mark og þá var staðan 3-1 en ekki 10-0 eins og færin buðu uppá.
Við verðum að fara vera ákveðnari í að koma boltanum í netið, annars gætum við lent í svipuðum leik og á móti Kóngunum.
Ég segi Örvar í framherjan…lausn allra mála :)

TLC – Geirfuglar

22 júní, 2007

3.Umferð Utandeildarinnar er á sunnudaginn (24.júní), við sátum hjá í annarri umferð. Við eigum leik við Geirfuglana á Tungubökkum í útjaðri Mosfellsbæjar. Leikurinn hefst kl19:00 og menn verða að vera mættir ekki seinna en 18:15 og þurfa að gera ráð fyrir að það taki tíma að komast þarna upp eftir.

Geirfuglarnir hafa tapað báðum sínum leikjum til þessa, gegn Puma 4-2 og gegn Kóngunum 3-2.

Þannig að væntanlega verður um hörkuleik að ræða, koma svo strákar fáum góða mætingu eins og síðast og tökum þennan leik. Allir að melda sig inn hér að neðan.

Plögger #1

Binnster

Æfing í kvöld

20 júní, 2007

kl. 21 í Risanum. Hverjir mæta?

Æfing miðvikudagskvöld

12 júní, 2007

Allir að mæta í Risann kl. 21, Miðvikudaginn 13. júní 2007.

TLC 4 – Kóngar 1

11 júní, 2007

TLC vann Kónga 4-1 á Framvellinum í gærkvöldi.

Byrjunarlið:
Gísli
Örvar, Siggi Hermans, Skúli, Jói
Ívar, Siggi Sæbergs, Stebbi Jóns, Gummi Stef
Gunni
Trausti

Varamenn voru: Óli C, Davíð, Finnur, Kiddi, Ægir og Stebbi Karls, sem allir komu við sögu í leiknum. Gummi S stjórnaði leiknum af mikilli snilld og á framtíðina fyrir sér í þessum bransa.

Mörk:
1: Stebbi Jóns
2: Trausti
3: Stebbi Karls
4: Ægir

Kóngarnir skoruðu fyrsta markið úr vítaspyrnu en eftir að hafa verið yfirburða lið á vellinum þá tókst TLC að setja boltann í netið á 60 mín. Eftir það var þetta auðvelt og þrjú mörk fylgdu í kjölfarið.

Ég (Örvar) nenni svo ekki að halda utan um tölfræðina þetta árið…

Mótið hefst!

5 júní, 2007

Svona lítur 1. umferðin út í A-riðli:

10.6.kl.18:00 V.Júpíters / Vatnal Ásvellir
10.6.kl.19:30 Hjörleifur / Dinamo Ásvellir
10.6.kl.21:00 Dufþakur /P.Gullan Ásvellir
10.6.kl.18:00 Puma / Geirfuglar Fram
10.6.kl.19:30 Kóngarni / TLC Fram 

Við erum í langsterkasta riðlinum og þurfum því að ná góðri mætingu í 1. leik og raka inn stigum.  Mæting kl. 18.45 í íþróttahúsi Fram n.k. sunnudag.

Koma svo allir að mæta.

Æfing miðvikudaginn 6. júní – síðasta æfing fyrir mót

5 júní, 2007

Koma svo náum upp smá stemningu fyrir mót!

Kl. 21 í Risanum.