Archive for júlí, 2007

TLC 4 – Vatnaliljur 1

30 júlí, 2007

TLC spilaði við Vatnaliljur á sunnudagskvöldið en leikurinn fór fram á Tungubökkum.

Byrjunarlið TLC:
Gísli
Örvar Siggi Her Doddi Robbi
Ívar Stebbi Jóns Jói Hjalti
Gummi og Siggi Sæ

Varamenn voru: Grímur, Kristinn og Addi.

Mörk:
1: Gummi skoraði mark af stuttu færi eftir að hann fylgdi vel á eftir skoti frá Ívari.
2: Stebbi Jóns skoraði glæsilegt mark með skoði fyrir utan teig eftir gott samspil við Sigga Sæ. Siggi Sæ fær flottan bolta innfyrir og setur hann svo út á Stebba sem smellti honum viðstöðulaust í markið.
3: Þeir félagar endutóku svo leikinn í þriðja markinu og var það ennþá fallegra. Siggi spólar sig í gegnum varnamenn Vatnalilja og setti hann svo út á Stebba sem tók hann innanfótar í vinkilinn. Mjög svipað mark og annað markið en aðeins betri útgáfa.
4:  Hjalti á góðan sprett upp vinstri kantinn og setti boltann þvert fyrir markið  og þar kom Gummi á sprettinum og nær að fleygja sér á boltann. Flott afgreiðsla.

Fengum svo eitt mark á okkur bara til að halda í hefðina.

Góður leikur á móti alveg ágætis liði.

Ég vil svo bara þakka fyrir sumarið, leitt að maður nái nú ekki fleiri leikjum en svona er rokkið eins og þeir segja. Fer til Norge á aðfaranótt föstudags en mæti galvaskur á næsta tímabili og þá lofa ég að vera í betra formi!

kveðja
Örvar

Vatnaliljunum drekkt á Sunnudaginn

27 júlí, 2007

Jæja þá er það næsti leikur í deildinni og er hann gegn Vatnaliljunum. Koma svo fáum góða mætingu og höldum áfram að vinna!

Hvenær: Sunnudaginn 29. júlí kl.  20.30 mæting kl. 19.45 í allra síðasta lagi.
Hvar: Tungubakkar

TLC 6 – Dinamo Gym 80 1

23 júlí, 2007

TLC spilaði við Dinamo Gym 80 í gærkvöldi á HK-vellinum í Fossvogi. Þessi leikur var í 5. umferð í A-riðli.

Byrjunarlið TLC
Gísli
Örvar Siggi He Baddi Þórður
Reynir Stebbi Jó Jói Hjalti
Óli Már Gummi

Varamenn voru: Siggi Sæbergs, Robbi, Óli Stef og Styrmir. Siggi Sæ kom fljótlega inná fyrir Óla Má sem meiddist snemma í leiknum. Siggi He fór svo einnig útaf meiddur og kom Robbi í vinstri bak. Óli Stef kom svo inná í hálfleik og Styrmir tók seinasta korterið.

Mörk og stoð:
1: Hjalti skoraði með skalla eftir hornspyrnu sem Óli Már tók.
2: Gummi skoraði fallegt mark með skoti fyrir utan teik sem dúndraðist í markið og var klíndur út við stöng. Annað hvort Siggi Sæ eða Jói gáfu á Gumma með glæsilegri hælspyrnu.
3: Siggi Sæ skoraði eftir flotta sókn upp hægri kantinn og eftir að, eins og Gummi orðaði það sjálfur, Gummi var búinn að sóla menn upp úr skónum lagði hann boltann á Sigga sem setti hann örugglega í netið af stuttu færi.
4: Óli Stef átti stórkostlegt mark með viðstöðulausu skoti fyrir utan teig og flaug boltinn í fjærhornið. Kemur til greina yfir mark tímabilsins. Siggi Sæ gaf boltann úr hægra horninu á Óla.
5: Jói skoraði af stuttu færi eftir góða sendingu frá Óla Stef frá hægri kanti.
6: Hjalti skoraði af stuttu færi eftir hornspyrnu þar sem Baddi kom seinast við boltann.

Við vorum með sterkt lið og spiluðum vel fyrir utan fyrstu mínúturnar í seinni hálfleik þegar Gym 80 náði að minnka muninn í 3-1. Markið hjá Óla kom á góðum tíma og drap þá alveg niður. Flottur leikur og nú er bara að halda áfram að vera með góða mætingu og þá erum við til alls líklegir.

Breytt staðsetning á leiknum í kvöld!!!!

22 júlí, 2007

Sælir leikurinn í kvöld fer fram á nýja HK gervigrasinu í Fagralundi en ekki á Fremvellinum.

Leikurinn er á sama tíma þ.a. það er mæting kl. 18.45 STUNDVÍSLEGA.

Mér skilst að það sé engin búningaaðstaða þ.e. þið gerið a.m.k. ráð fyrir því, annars er örugglega hægt að skreppa í sturtu hjá Kidda Tví. þar sem hann á heima við völlinn.

Leikur á Sunnudaginn kl. 19.30 á Framvellinum

18 júlí, 2007

… gegn Dinamo Gym 80, mæting kl. 18.45 stundvíslega.

Allir að mæta, við ætlum að vinna alla leikina í sumar.

Æfing í kvöld kl. 21 í risanum

18 júlí, 2007

Koma svo skrá sig

1. umferð í bikarnum…

11 júlí, 2007

.. hefst á mánudaginn 16/07 kl. 20.30 á Tungubökkum gegn Strumpum.

Mæting eigi síður en 19.45, koma svo ætlum við ekki að taka 2 titla í sumar?

Æfing í kvöld

11 júlí, 2007

kl. 21 í Risanum eins og ávallt.

ATH!!! Leikurinn frestast í kvöld um óákveðin tíma

8 júlí, 2007

það verður enginn leikur í kvöld sjá á hér:

http://sms.vas.is/web/gras.is/utandeildin//index.php?p=threads&id=1225

Viðeyjarferð

4 júlí, 2007

Jæja þá er komið að hinni árlegu TLC ferð. Farið hefur verið í Viðey síðustu ár og ekki er búist við breytingu þar á þetta árið. Reyndar eigum við eftir að klára það dæmi þar sem Ægir er ekki lengur Viðeyjar erfingi og því eru heimatökin ekki eins hæg. En takið endilega frá föstudaginn 17. ágúst (daginn fyrir menningarnótt). Mæli líka með að menn byrji að safna fyrir þessari ferð…

Kveðja,

Grímur Ga
TLC Eventplaner

(Ég mixaði textann svo hann myndi sjást, kv Örvar)