Leikur á morgun, þriðjudaginn 28. ágúst kl. 19.30 á Ásvöllum, mæting kl. 18.45 stundvíslega.
Allir að melda sig inn.
Leikur á morgun, þriðjudaginn 28. ágúst kl. 19.30 á Ásvöllum, mæting kl. 18.45 stundvíslega.
Allir að melda sig inn.
Næsti leikur er þiðjudaginn 21. ágúst kl. 19.30 á Ásvöllum, mæting kl. 18.45.
Við spilum við Vængina á morgun og þeir eru gríðarlega sterkir þ.a. við eigum von á hörkuleik.
Farið verður í hina árlegu “Viðeyjarferð” föstudaginn 17. ágúst. Þetta er föstudagurinn fyrir Menningarnótt og því ættu allir að vera í bænum. Farið verður frá BSÍ klukkan 18:30 í rútu til Eyrabakka aka. Litlahraun. Hefur “Hannes Pabbi” ákveðið að dekka á borð fyrir okkur og setja upp svaka grill. Svo tekur við skemmtidagskrá fram á hvíta nótt. Lagt verður afstað í bæinn um miðnætti og mun gleðin standa áfram þar fram eftir. Vegna þess hve krónan hefur lækkað mikið upp á síðkasti þurfum við að rukka fyrir þessa ferð litlar 5.000 kr. Mikilvægt er að menn meldi sig inn strax svo hægt verði að klára allan undirbúning sem fyrst og greiða þeim sem greiða þarf, en það þarf að panta þennan langferðbíl sem fyrst.
Þannig að meldið ykkur strax inn og greiðið inn á reikning 1135-26-003775 kt:2602794329.
Sjáumst hressir…
Skemmtinefndin…
Minni á æfinguna á morgun, miðvikudag, kl.21 í Risanum.
Allir að melda sig inn.
TLC sigraði Elliða örugglega í 7.umferð Utandeildarinnar í gærkvöldi og tilti sér um leið á topp A-riðils. Leikurinn var gríðarlega mikilvægur í toppbaráttu riðilsins þar sem bæði lið hefðu farið í toppsætið með sigri.
Byrjunarlið TLC var þannig skipað:
Gísli
Reynir Svavar Andrés Óli C
Ívar Siggi H StefánH Hjalli (c)
Siggi Sæ Arnór
Á varamannabekknum voru síðan:
Robbi, Stebbi Karls, Doddi, Steini Ben og Gaui Ármann.
Það er skemmst frá því að segja að TLC stjórnuðu leiknum frá upphafi til enda og á löngum köflum í fyrrihálfleik þá komust leikmenn Elliða vart yfir miðju. Leikskipulag andstæðinga okkar var greinilega að sitja aftur og beita skyndisóknum. Fyrsta mark leiksins var lengi í fæðingu en fyrir það höfðu TLC átt nokkur ákjósanleg marktækifæri en örlitla grimmd og græðgi vantaði til að klára þau. Það var síðan eftir hornspyrnu og mikinn atgang í vítateig Elliða að Reynir náði að þruma knettinum í átt að marki í gegnum þvöguna, leikmenn Elliða höfðu þá tyllt sér 4-6 á markteig, og í bumbuna á Sigga Hermanns sem stýrði knettinum yfir línuna með skemmtilegum hætti. MArkið kom á kærkomnum tíma eða undir lok hálfleiksins.
Röggsamur þjálfari liðsins gerði þarfar breytingar í hálfleik en þær voru ma eftirfarandi: Ívar, Siggi H og Óli C komu allir út fyrir Robba, Dodda og Steina B.
Í seinni hálfleik héldu TLC menn uppteknum hætti og stjórnuðu leiknum þó kom um 5-10mín kafli þar sem Elliða menn virtust vera komast betur inn í leikinn og áttu ma eitt ákjósanlegt færi sem Gísli varði meistaralega. Við þetta gerði þjálfarinn frábæra breytingu sem átti eftir að vera vendipunktur leiksins, Siggi H fór aftur í vörnina, Andrés þétti miðjuna og Siggi Sæ færði sig yfir á vinstri kantinn. Við þetta færðist meira jafnvægi í leik liðsins og TLC náðu aftur yfirhöndinni. Siggi Sæ setti annað mark TLC og var það einkar glæsilegt, Guðjón Ármann átti fyrirgjöf frá hægri sem Elliða menn náðu að skalla frá en ekki betur en svo að Siggi fékk knöttinn utan teigs og setti hann efst í markhornið óverjandi fyrir stórmeistarann í markinu.
TLC hélt síðan þessari forystu allt til loka og það nokkuð örugglega og hefði sigurinn getað orðið mun stærri þar sem þónokkur mjög góð færi fóru forgörðum. TLC var að spila gríðarlega vel í þessum leik og greinilegt að menn voru staðráðnir í að hefna tapsins í bikarnum í síðustu viku. Allir leikmenn áttu fínan leik og allir varamennirnir áttu mjög góða innkomu.
Smá tölfræði (tileinkuð Örvari Steingríms):
Marktilraunir: 26-11
Horn :7-2
Mörk og stoðsendingar: 1-0 Siggi H/Reynir, 2-0 Siggi S/enginn. Reyndar er markið skráð á Reyni þannig að þið getið útkljáð þetta ykkar á milli um hver hafi í raun skorað.
Atvik leiksins: þau eru tvö að þessu sinni: a) Siggi Sæ klobbar Snæbjörn út við hliðarlínu með hælspyrnu ( einkar vandræðanlegt móment en gríðarlega fallegt) b) Guðjón Ármann, nýkominn inná sem varamaður, sleppur einn innfyrir og liggur kylliflatur um sjálfan sig.
Það er síðan enginn smá leikur þann 21.ágúst næstkomandi enn þá eigum við leik gegn núverandi meisturum Vængjum Júpíters. Þeir eru sem stendur í 2.sæti riðilsins með 13 stig og því um gríðarlega mikilvægan leik að ræða, meira um hann síðar.
Síðan minni ég menn á “Viðey” næstkomandi föstudag, allir að melda sig inn og mæta í þessa geðveiki.
Plögger #1
Næsti leikur TLC í deildinni er á morgun, mánudaginn 13.ágúst kl. 20:30 og mæting er kl 19:45. Leikurinn fer fram á gervigrasi Aftureldingar í Mosfellsbæ.
Mótherjar okkar verða að þessu sinni Elliði sem við töpuðum fyrir í síðustu viku í bikarkeppninni.
Leikurinn er gríðarlega mikilvægur í toppbaráttu A-riðils en Elliði er í þriðja sæti með 11 stig, stigi á eftir okkur.
Þetta er leikur sem við verðum að vinna og því er mikilvægt að menn sjái sér fært um að mæta.
Næsti leikur er miðvikudaginn 8. ágúst kl. 21 á HK gervigrasinu.
Mæting kl. 20.15.
Við mætum núverandi utandeildarmeisturum Elliða þ.a. það má búast við hörkuleik. Við þurfum að fá góða mætingu þ.a. allir að skrá sig
kl. 21 í Risanum
Allir að skrá sig!