Það var fámennur en góður hópur sem var mættur til leiks á Fremvellinum í gærkvöldi, einungis 11 Plöggerar og vekur upp spurningar um menn sem melduðu sig inn en mættu ekki án þess að láta vita (Óli Stefgjald og óTrausti).
Enginn varnarmaður var í þessum fríða hóp en menn áttu heldur betur eftir að afsanna þá staðreynd. Byrjunarliðið var þannig skipað
Gunni Barthez
Ívar Reynir Grímur Kóngur Robbi
Siggi Sæ Valli Stefán Helgi Hjalli (c)
Gunni Þristur Gummi kraftgalli
Varamenn: enginn og þeir komu allir við sögu í leiknum.
TLC byrjaði leikinn gríðalega vel og komst fljótlega í 2-0 með mörkum frá Hjalta og Gunna. Puma náði að jafna fyrir hlé og staðan því 2-2 í hálfleik. TLC gerðu fáar breytingar í hálfleik aðrar en þær að láta ekki barna- og fíflaskap leikmanna Puma fara í taugarnar á sér og spila frekar fótbolta. Það leikskipulag gekk fullkomlega eftir og TLC komst í 3-2 fljótlega með marki úr aukaspyrnu frá Stefáni Helga. Puma hélt að þeir hefðu náð að jafna en réttilega var dæmd rangstæða. Eftir þetta tók TLC leikinn í hendur sér settu fjórða markið og það sprengdi þolinmæði Puma þar sem þeir juku í tudda-, rudda- og fautaskap sinn. Þeirra hegðun gat bara endað á einn veg, Árni Dansari fauk útaf fyrir kjaftbrúk og tilraun til að tækla Hjalla í nárann, skiljanlega þar sem Hjallinn hafði fíflað hann skemmtilega. Við þetta mótlæti réð Puma ekki við og því miður þá einbeittu þeir sér að tuði og leiðindum frekar en knattspyrnu ( sem er miður þar sem þeir eru með fínt lið). TLC smellti 4 mörkum í röð og kláruðu þennan leik með sóma.
Veddi fékk fyrirsjáanlegt rautt spjald í lokinn og hefði Ívar Guðmunds einnig mátt fá rautt spjald fyrir að traðka viljandi á Ívari Helgadóttur. Það er alltaf jafn sorglegt að sjá fullorðna menn haga sér eins og smákrakka og það er gott að við duttum ekki niður á þeirra plan. Grímur fann til með þeim og gaf þeim eitt mark í lokinn, enn sýnir Grímur frábært fordæmi um drengskap og kærleik.
Lokatölur 8-3 fyrir TLC og annað sætið tryggt með réttu. Við höfum spilað vel þessa 9 leiki og nú er að taka þetta veganesti með í úrslitakeppnina.
Liðið átti mjög góðan leik í heildina og menn eiga heiðurskilið fyrir að taka heilan leik á sunnudegi gegn sterkum mótherjum. Gunni Þristur hefur sett stefnuna á amk 2 þrennur í viðbót, Grímur hefur verið orðaður við atvinnumensku eftir ROCK SOLID frammistöðu í hjarta varnarinnar. Siggi Sæ og Hjalli áttu góðan leik á köntunum, Gummi var vel klæddur frammi, miðjan var sterk, Roberto Carlos og Ívar Neville áttu frábæran leik í bakvarðastöðunum og Reynir kom vel út í miðverðinum ( enda erfitt að líta illa út við hlið Gríms).
Mörk og stoðsendingar
1-0: Hjalti (?)
2-0: Gunni (Siggi Sæ)
3-2: Stefán Helgi (Gunni felldur)
4-2: Gummi S (Siggi Sæ)
5-2: Gunni (?)
6-2: Hjalti (?)
7-2: Sjálfsmark (Siggi Sæ)
8-2: Gunni (Grímur)
Ef menn eru með það sem uppá vantar endilega commentið á þaðNæsti leikur verður á miðvikudaginn kemur gegn Pungmennafélagi Gulla á Framvelli kl.1900 mæting 1815.