TLC er í fyrsta skipti komið í úrslitaleik Utandeildarinnar !
Í gær lagði TLC núverandi meistara, Vængi Júpiters, af velli eftir framlengingu og vítaspyrnukeppni. Sigurinn er enn sætari þegar horft er til þess að TLC lék einum manni færri frá 25mín eða í uþb 80mín. Í þessum leik sýndu menn þann karakter, þann vilja, þá samstöðu og kraft sem einkennir sigurvegara. Það ætlaði enginn að tapa þessum leik og einum færri þjöppuðu menn sér enn betur saman og kláruðu verkefnið sem einn maður.
Strákar nú er komið að því að fara alla leið. Við höfum sýnt það oft í sumar að við erum með frábært lið og það eru fá lið sem standast okkur snúnning á góðum degi, og ég fullyrði að það er ekkert lið sem stenst okkur snúning á degi eins og í gær. Á laugardaginn kemur leikum við gegn Elliða í úrslitaleik Utandeildarinnar 2007. Við höfum spilað all oft við Elliða og gengið misjafnlega, töpuðum í bikarnum í ár eftir framlengingu og unnum þá síðan í deildinni. Þeir lögðu nýkrýnda bikarmeostara FC CCP af velli í gær 2-0 og verða án efa jafn erfiðir og alltaf.
Leikurinn á laugardaginn fer fram á sama stað og í gær, Kórnum (Vallarkór) í Kópavogi. Leikurinn hefst kl.1600 og mæting ekki seinna en 1500. Við þurfum að fá góða mætingu lík og undanfarna tvo leiki. Þá skora ég einnig á alla að sem á tittlingi geta haldið að mæta og styðja við bakið og “strákunum okkar”.
Strákar með alvöru baráttu, vilja, samstöðu, krafti og trú vinnum við þennan leik. Menn verða koma samstilltir inn í þennan leik og berjast allir fyrir einn og finna Bóngóinn.
Kommmmmmmmmaaaaaaaaaa ssssssssvvvvvvo melda sig INN
TLC // svo miklu meira
Plögger #1


