Sælir félagar,
það hefur nú verið frekar rólegt yfir TLC undanfarna mánuði og spurning hvort að við þyrftum ekki að fara að taka nokkrar ákvarðanir með framhaldið.
Fyrsta málið er hvort það sé einhver hugur í mönnum að vera með næsta sumar. Kópavogurinn er klár líkt og ávallt svo er líka 7 manna deild sem hægt er að skoða.
Það varð ekkert úr árshátíðinni og ef menn eru klárir í sumarið þá væri ekki úr vegi að kickstarta tímabilinu með nokkrum bjössum og kattarnammi.
Hvað segja menn? Væri gaman að fá smá feedback með það hvort okkur langi að spila smá sambabolta í sumar.
Kv. Gísli


