TLC vann Áreitni í gærkvöldi (12. ágúst) 4-1 á Fjölnisvelli í Grafarvoginum.
Byrjunarlið TLC:
Óli C
Örvar – Óli Bryn – Svavar – Robbi
Villi – Steini – Siggi H – Hjalti
Óli Már
Trausti
Bekkurinn: Siggi Sæ og Stebbi.
Við byrjuðum leikinn bara með 11 leikmenn í hóp en svo komu Siggi Sæ og Stebbi þegar leikurinn var rétt að byrja. Seinna í leiknum fór Stebbi fram og Siggi Sæ á kantinn.
Spiluðum fínan bolta fyrstu 20 mínúturnar en svo fór þetta versnandi það sem leið á leikinn.
Steini skoraði fyrsta markið eftir hnot í teignum þegar Trausti náði að koma boltanum út í teiginn þar sem Steini kom og kláraði af stuttu færi.
Óli Már skoraði annað markið eftir stórglæsilega sókn þar sem hin eitur snöggi og áræðni bakvörður Örvar átti sendingu frá hægra horni inni í teig og Óli kom á ferðinni og skallaði í netið.
Við fengum svo mark á okkur úr víti eftir skyndisókn þar sem vörnin var eitthvað sofandi og maður slapp inn og Óli C fór aðeins í hann þegar hann kom út úr markinu. Staðan var því 2-1 í hálfleik.
Seinni hálfleikur byrjaði svipað og fyrri hálfleikur og gekk lítið hjá TLC að ná auka marki til að klára leikinn. Fengum markar álitlegar sóknir sem runnu út í sandinn. Getum líka alveg sagt að slakur dómari leiksins hafi ekki verið okkur hliðhollur og var kominn nettur pirringur í menn.
Siggi Hermanns gerði svo vel með að skora þriðja mark leiksins úr hornspyrnu eftir eitthvað moð í teignum.
Siggi Hermanns var svo aftur á ferð skömmu seinni þegar hann slapp einn í gegn og setti boltann í hægra hornið fram hjá markverði Áreitni og kláraði þar með leikinn.
Frekar lélegur leikur hjá okkur heilt yfir. Ef við hefðum verið að mæta betra liði hefði við alveg getað klúðrað þessum leik. Sendingarnar voru ekki að skila sér á menn og ekkert gekk upp við markið.
Þetta lagast allt vonandi en við verðum engu að síður að vinna rest til að vera öruggir í úrslit.
Mörk og stoðsending
1: Steini – Trausti
2: Óli Már – Örvar
3: Siggi H – ?
4: Siggi H – ?
Ef menn vita um stoðsendingar eða staðreyndarvillur í þessum texta endilega látið vita.