Archive for september, 2008

TLC – Hjörleifur á SUNNUDAGINN, mæting kl. 17.30

5 september, 2008

Blessaðir

leikurinn færist fram á Sunnudag þ.a. nú er engin afsökun, allir að mæta og ekkert múður með það.

Leikurinn fer fram í Kórnum (Kópavogi) og byrjar leikurinn kl. 18:30, mæting kl. 17:30.

Koma svo melda sig!

TLC – Hjörleifur á laugardaginn

3 september, 2008

Blessaðir

Þá er komið af 8-liða úrslitum og mætum við Hjörleifi á laugardaginn 6. september. Leikurinn fer fram í Kórnum (Kópavogi) og byrjar leikurinn kl. 17:00, mæting kl. 16:00.

Hjörleifur er með hörku lið og því mikilvægt að fá sem mest af mannskap. Siggi Hermanns verður ekki með ásamt Hjalta og Ívari. Siggi meiddur og Hjalti og Ívar erlendis. Það er því mikilvægt að allir leggi sig fram í að mæta.

Allir að skrá sig og einnig bið ég menn að láta vita með fyrirvara ef þeir eru tæpir á að mæta eða komast ekki.

Kveðja

Fjölmiðlafulltrúinn.