Leikurinn er kl. 20:30 og menn mæta tímanlega 19:45-20:00. Leikurinn er væntanlega í Mosó þar sem seinustu æfingaleikir hafa verið.
Þetta er alvöru leikur á móti meisturunum þannig að við þurfum topp mætingu.
Allir að skrá sig.
Leikurinn er kl. 20:30 og menn mæta tímanlega 19:45-20:00. Leikurinn er væntanlega í Mosó þar sem seinustu æfingaleikir hafa verið.
Þetta er alvöru leikur á móti meisturunum þannig að við þurfum topp mætingu.
Allir að skrá sig.
TLC spilar við Henson á þriðjudaginn 19. maí kl. 20:30 21:30í Mosó.
Búningsaðstaða verður til staðar og allir að reyna að mæta tímanlega til að fara í búninga.
Skráning hérna á síðunni.
Uppfært
Búið að breyta tíman í 21:30. Menn láta vita ef eitthvað breytist með mætingu, annars stendur fyrri melding.
Mættum Metró mönnum í Mosfellsbænum í ágætis veðri þó hvasst hafi verið framan af. Við höfðum á að skipa heldur fámennu (en góðmennu) liði og vorum akkúrat 11.
Lokatölur voru 6-3 okkur í vil að mig minnir og mörkin skoruðu Gummi S 4, 1 sjálfsmark og Trausti með 1.
Maður leiksins var vafalaust spóaleggurinn Ívar Gestsson sem átti afburða leik á hægri kantinum og skilaði hverri frábæru sendingunni á fætur annarri inní teig andstæðingana, eingöngu vantaði hausa til að stanga þessa bolta í netið.
Liðið var svona:
Mark: Robbi
Vörn: Finnur – Garðar – Siggi H – Addi Gísla
Miðja: Ívar – Bjarni H – Vilmar – Óli Steph
Framl miðja: Gummi S / Trausti
Sókn: Trausti / Gummi S
Robbi: sýndi hve “íþyngjandi” það getur verið að búa í London – “fish and chips syndrom” eða hvað ?? – skulum orða það þannig að Robbi hefur átt betri leiki sem útileikmaður.
Finnur: átti prýðilegan leik sérstaklega framan af þegar hann sýndi góða takta fram á við.
Garðar (nýr): átti góðan leik, stór og sterkur strákur þar á ferð sem kemur til með að styrkja liðið treysti hann sér í þetta af fullri TLC alvöru.
Siggi H: skilaði góðum leik.
Addi Gísla: var öflugur í leiknum og sýndi mikinn baráttuanda – sér í lagi í einu tilfelli nánast út við hornfána þegar bakvörður Metró var að rekja boltann og þvílík hætta framundan J þá fórnaði kappinn sér í boltann og nánast tók af sér hnéð – alveg til fyrirmyndar og vonandi verður hann orðinn góður fyrir þriðjudaginn.
Ívar: klárlega maður leiksins þrátt fyrir að þurfa að fara fyrr.
Bjarni H: átti góðan leik á miðjunni og náði vel saman við Vilmar.
Vilmar (lánsmaður á vegum Bjarni H): átti góðan leik á miðjunni og náði vel saman við Bjarna.
Óli Steph prýðilegan leik.
Gummi S: komst vel frá sínu sem fyrr og setti hvorki fleiri né færri en 4 lið, þarf aðeins að stilla miðið og skorar þá 8 í leiknum.
Trausti: átti góðan leik og setti 1.
Æfingaleikur TLC og Metró er á fimmtudaginn kl. 21:15 í Mosfellsbænum. Við vorum 13 í gær og áttu flottan leik þannig að um að gera að halda áfram að mæta vel og koma okkur í smá leikform fyrir sumarið.
Allir að skrá sig (bæði þeir sem komast og komast ekki)
Við mættum vinum okkar í Elliða í gærkvöldi í fyrsta æfingaleik sumarsins á gervigrasinu í Mosó. Veðrið var ágætt en töluvert hvasst á köflum.Leikurinn endaði 3-1 fyrir TLC en erfitt var að dæma um hvaða mark var dæmt gilt og hvað ekki, hefði þess vegna getað verið 5-1.
Liðið var sem hér segir (4-4-2 / 4-3-3 / 4-5-1 mismundandi í leiknum) :
Mark: Gísli
Vörn: Svavar, Jón Fannar, Siggi H, Ingi Þór
Miðja: Raggi Árna, Sverrir, Stebbi, Örvar
Sókn: Gummi og Trausti
Óli Steph og Hjalti byrjuðu á bekknum en komu báðir inn á í fyrri hálfleik. Síðan var aðeins róterað eins og þurfti.
Óhætt er að segja að nýju leikmennirnir komu vel út og lofa góðu fyrir sumarið. Gömlu jálkarnir stóðu fyrir sínu.
Það sem má taka úr þessum leik var að menn voru að spila nokkuð vel miðað við fyrsta leik og að 4 leikmenn voru að spila með okkur í fyrsta sinn. Spilað var frá aftasta manni fram á völlinn og mjög lítið fór fyrir löngum sendingum sem oft áður hefur verið að há okkur. Þannig að útlitið er mjög gott fyrir sumarið.
Næsti æfingaleikur er á fimmtudaginn gegn Metró og nú er ekkert annað en að melda sig núna í þann leik – kemur ný melding inná síðuna.
Mörk TLC:
1: Sjálfsmark
2: Gummi S
3: Stebbi
Nú er komið að því…búið að negla niður 3 æfingaleiki og 4 á leiðinni. Allir að mæta sem mögulega geta því þetta er ca. eina æfing okkar fyrir mót. Held að þetta sé á gervigrasinu í Mosó (Siggi leiðréttir ef það er vitlaust).
Mánudag 11. maí, kick-off kl 21.15 – spilum við Elliða
Fimmtudag 14. maí, kick-off kl 21.15 –spilum við Metró
Þriðjudag 19. maí, kick-off kl 20.30 –spilum við Henson
Allir að skrá mætingu og ágætt væri ef menn gætu láitð vita bæði með mánudags og fimmtudags leikinn. Menn hljóta að geta náð mætingu á mánudagskvöldi til að vinan erkióvini okkar í Elliða.
Æfing í kvöld í Risanum kl 22. Það var góð mæting á seinustu æfingu og við kvetjum alla til að mæta til að ná 6 á 6.