Hart barist í Kórnum

By fctlc

TLC lék við Vængi Júpiters síðastliðinn fimmtudag í Kórnum. Fyrirfram var búist við hörkuleik enda Vængirnir núverandi meistarar og TLC með mjög sterkt lið, sennilega sterkasta TLC lið sögunnar. Það var þó enginn klassi yfir liðinu í byrjun enda mættu bæði búningar og boltar aðeins nokkrum mínundum fyrir leik. Það var því engin upphitun að ráði sem gengur ekki gegn liði eins og Vængjunum.
Vængirnir voru gríðarlega sterkir fyrstu 20 mín og hreinlega yfirspiluðu TLC en vörnin og markvarslan hélt. Gummi Steindórs tognaði aftan í læri eftir 10 mín og var það mikil blóðtaka, sérstaklega vegna þess að Trausti var ekki spilfær. Smátt og smátt komst TLC meira inn í leikinn og átti nokkur hálffæri. Staðan í hálfleik 0-0.
Seinni hálfleikur var mun jafnari enda getur ekkert lið keyrt heilan leik eins og Vængirnir gerðu í fyrri hálfleik. Mikil barátta var í leiknum og menn í báðum liðum lögðu allt í leikinn. Vængirnir komust yfir snemma í seinni hálfleik úr fyrsta alvöru færinu sínu. Hættulegasti maður Vængjanna, Guðmundur Auðunsson sleppur inn fyrir og skrúfar boltann í fjærhornið, glæsilega afgreitt. Fram að þessu hafði gríðarlega sterk varnarlína TLC haldið sóknarmönnum Vængjanna algjörlega í skefjum. Eftir markið sótti TLC af meiri krafti og 20 mín fyrir leikslok datt boltinn út fyrir teig eftir hornspyrnu fyrir fæturna á Óla sleggju sem smurði honum í samskeitin, óverjandi. Klárlega eitt af mörkum sumarsins. Þegar 5 mín lifðu af leiknum fengu Vængirnir aukaspyrnu á miðjum vallarhelmingi TLC. Hinn massaði og ljósabrúni senter Vængjanna setti fastan háan bolta inn á markið. Binni ætlaði að slá frá eins og hann hafði þurft að gera mjög oft í leiknum en lenti í samstuði við varnarmann og boltinn endaði í markinu. 2-1 fyrir Vængina. Allt stefndi í svekkjandi úrslit fyrir TLC þegar Siggi klettur vinnur aukaspyrnu á miðjum velli alveg út við hliðarlínu. Hann tekur aukaspyrnuna sjálfur og neglir inn á markteig þar sem Raggi beið og beið áður en hann skallaði boltann örugglega í markið, frábært jöfnunarmark á ögurstundu. Litlu munaði að TLC næði að stela sigrinum þegar Raggi slapp í gegn á síðustu sekúndu leiksins en hann setti botann yfir.
Það er ljóst að bæði þessi lið verða í toppbaráttunni í sumar. TLC er með lang sterkustu varnalínuna og þegar miðjan og sóknin verður búin að spila sig betur saman verður erfitt að eiga við TLC.

Þeir leikmenn sem ég tilnefni í vali á manni leiksins eru:
Jón Fannar
Ingi
Siggi
Raggi
Óli Sleggja

Kosning á manni leiksins er hér að ofan

Kv, Hjalti

Skildu eftir svar