Andleysi á Framvelli + kosning á manni leiksins

By fctlc

TLC mætti liði Kumho síðastliðinn miðvikudag á gervigrasi stórveldisins Fram. Bjuggust menn við hörkuleik þar sem Kumho hafa komið öllum að óvörum og eru í toppbaráttunni í okkar riðli og TLC menn staðráðnir í að sýna hvað í okkur býr eftir baráttujafntefli gegn Vængjunum. Óhætt er að segja að TLC menn voru gjörsamlega ekki mættir hugarfarslega séð því andleysi, metnaðarleysi, hugarfarsleysi,getuleysi…….. ríkti okkar leik frá byrjun. Kumho tóku öll völd á vellinum og voru mun sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og skoruðu tvö mörk með þriggja mínútna millibili eða á 34. og 37. mín leiksins og skiptir engu máli hverjir skoruðu þau mörk en annað þeirra var gjöf af okkar hálfu. Við náðum svo að klóra í bakkann rétt fyrir hálfleik með marki frá varnarjaxlinum Jóni Fannari sem kvittaði fyrir að hafa misst boltann í einu af mörkum Kumho. Markið var fyrsta merki um iðjusemi af okkar hálfu í leiknum þar sem Jón sýndi baráttuhug inn í markteig Kumho og negldi boltann í netið af stuttu færi, gjörsamlega óverjandi. Dauft var yfir mönnum í hálfleik en allir voru hinsvegar sammála um að við myndum nú ekki fara inn á völlinn með sama hugarfar og fyrri hálfleikur reyndist. Tvær skiptingar litu dagsins ljós þar sem Ólarnir tveir Steph og Már komu inn á miðjuna fyrir Einar og Sverri og breyttu gangi svo um munaði J. Barátta Óla Márs á miðjunni ásamt vel útfærðum sendingum gerðu það að verkum að TLC komst strax inn í leikinn og náðu nokkrum góðum sóknum. Fljótt varð kappsemin samt full mikil þar sem ein góð tveggja fóta tækling ala Óli Már leit dagsins ljós en allir sluppu heilir frá þeim ósköpum (ekki að sjá að Óli hafi verið meiddur í marga mánuði). Steffarinn sýndi nokkra spretti en vantaði herslumuninn upp á að hann slyppi inn fyrir og næði að halda uppi þráðnum frá gullfallegu marki hans gegn vængjunum. Þrátt fyrir að okkar leikur hafi batnað til muna í seinni hálfleik náðu Kumho að setja tvö mörk til viðbótar á okkur og endaði leikurinn 1-4. Heilt yfir mjög bragðdaufur leikur af okkar hálfu og þurfum við að hysja upp um okkur brækurnar fyrir næsta leik. Sóknir okkar þurfa að vera mun beittari og betur útfærðar. Hefur sýnt sig að kýlingar upp miðjuna er ekki að ganga upp því lítið sem ekkert hefur komið út úr því í öllum þeim leikjum sem við höfum leikið í sumar.

Tilnefningar til mann leiksins eru að mínu mati enginn leikmaður en ég setti 4 leikmenn sem voru svona næstum því að spila fótbolta:

Maður leiksins:

Siggi Hermanns

Óli Már

Jón Fannar

Ingi

Liðið var þannig skipað:

Mark: Binni

Vörn: Garðar-Siggi-Jón F.-Ingi

Miðja: Einar-Sverrir-Stebbi-Siggi Steindórs-Hjalti

Sókn: Gummi S

Varamenn: Óli Steph,Óli Már,Svavar,Daníel,Sæmi

Skildu eftir svar