Archive for júlí 13th, 2009

Bikarinn, 16-liða úrslit; TLC – SÁÁ

13 júlí, 2009

Næsti leikur TLC er á miðvikudaginn kemur gegn SÁÁ í 16 liða úrslitum bikarkeppninnar. Lið SÁÁ hefur bætt við sig góðum mannskap frá fyrra ári og eru nú í 2. Sæti B riðils með 10 stig. Hafa þeir unnið lið eins og Dufþak (6-0), Hómer (4-2) og FC Dragon (5-0) auk þess sem liðið vann Hjörleif örugglega í 22-liða úrslitum bikarsins. Þannig að ljóst er að um hörkuleik verður að ræða.

Við þurfum að fylgja á eftir góðum 2-1 sigri gegn Nings í síðustu umferð. Það er kominn tími á að TLC geri almennilega atlögu að bikarnum.

Strákar mætum nú tímanlega og tökum upphitun svona til tilbreytingar fyrir leikinn og náum upp Bongó stemningu, veðurspáin er klassi: þurrt að kalla, 12-14 stiga hiti og gola. Sá sem er með búningana plís mæta á réttum tíma.

Allir að skrá sig hér

Staðsetning: HK- völlur í Fagralundi Kópavogi
Tímasetning: 19:00
Mæting: 18:15
Dagskipun: stemning, barátta og samheldni.

Bongó litli