Sælir drengir.
Í 5. umferð mættum við Nings mönnum á Framvellinum þann 8. júlí í blíðskaparveðri. Eins og við mátti búast var þetta hörkuleikur enda Nings menn á svipuðu róli og við í deildinni og höfðu allan hug á að ná 3 stigum. Golfmót útum allt var mikil blóðtaka fyrir okkur en um 8 manns vantaði vegna þessarar bolta íþróttar
Hinsvegar létum við það ekkert á okkur fá og skiluðum 3 stigum í hús og þeir sem voru að spila sinn fyrsta leik í sumar stimpluðu sig vel inn.
Við lágum töluvert mikið tilbaka í þessum leik og fengum mikið af sóknum á okkur. Nings menn áttu yfir það heila fleiri færi en Óli C stóð hinsvegar vel fyrir sínu á milli stanganna og varði oft mjög vel. Við beittum mikið af löngum sendingum fram og var lagt upp með að nýta vængina betur en í fyrri leikjum. Uppúr því sköpuðust færi af og til sem við náðum ekki að nýta.
Á 12. mínútu komust Nings menn yfir eftir klafs í okkar teig eftir hornspyrnu. Í stað þess að við náum að hreinsa útúr teig fór boltinn í samherja og skoppaði beint fyrir framan markið þar sem Nings maður kom og setur hann frír í markið. Við þetta má segja að við höfum aðeins tekið við okkur en á 20. mínutu jafnar Hrafn með góðri vippu yfir markmanninn eftir góða stungusendingu. Stuttu seinna átti hann svipað færi en vippaði þá aðeins framhjá markstönginni. Síðan á 44. mínútu skorar Gummi S svona líka geggjað mark þar sem hann contrar boltann með vinstri beint í samskeytin rétt við vítateigslínu. Eftir þetta mark féllum við aftar á völlinn og Nings menn lágu á okkur. Þeir fengu allt of mörg færi en allt kom fyrir ekki. Mikilvæg 3 stig í hús.
Tilnefningar til manns leiksins
Óli C
Garðar
Villi Eiríks
Hjalti
Hrafn
Gummi S
Staðan á kosningu manns leiksins hingað til
1. umferð: TLC – FC Ice = Trausti
2. umferð: TLC – Vængir = Óli Steph
3. umferð: TLC – Kumho = Óli Már
4. umferð: TLC – Metro = Óli Már