Bikarleikur
Það voru frábærar aðstæður sl. miðvikudag þegar TLC mætti liði SÁÁ í 16 liða úrslitum Bikarkeppninnar, 15 stiga hiti og hægur andvari.
Mætingin var góð en alls létu 15 sjá sig og var byrjunarliðið eftirfarandi;
Binni
Svavar – Jón Fannar – Garðar – Örvar
Siggi H -Sæmi
Sverrir Óli Már Einar
Hrafn
Varamenn: Höski, Róbert, Raggi, Finnur
Það sem kom einna helst á óvart við uppstillingu liðsins að þessu sinni var sú staðreynd að Róbert var á tréverkinu en þetta mun vera í fyrsta skipti í 10 ára sögu TLC sem Róbert byrjar útaf. Dagskipunin var að vera þéttir tilbaka, halda boltanum niðri og nýta breiddina.
TLC tók yfirhöndina strax í upphafi leiks og boltinn rúllaði vel á milli manna. SÁÁ komust varla yfir miðju fyrstu 15 mín leiksins. Þrátt fyrir að vera mikið með boltann náðum við ekki að skápa okkur almennilega færi, mikið um hálffæri og skot fyrir utan teig. Á 21 mín uppskárum við síðan vítaspyrnu þegar Örvar var felldur í vítateig SÁÁ. Mjög vel útfærð sókn þar sem við höfðum spilað frá aftasta manni og Örvar kom í overlap og var felldur inní teig og réttilega dæmd vítaspyrna. Á punktinn fór Jón Fannar en hann lét verja frá sér spyrnuna sem var í slakari kanntinum (en það mun allt hafa verið boltanum að kenna).
Það var því nokkuð gegn gangi leiksins sem SÁÁ skoruðu og komust yfir á 27 mín. Mjög vel að verki staðið hjá SÁÁ, góður bolti fyrir markið og miðjumaður þeirra náði að stinga sér inn fyrir vörnina og reka stóru tánna í tuðruna og í blá hornið óverjandi fyrir Binna í markinu. Markið kom eins og köld vatnsgusa framan í TLC menn sem höfðu framm að þessu ráðið leiknum algjörlega. Bikarinn hefur reynst TLC erfiður ljár í þúfu í gegnum árin og voru menn farnir að velta fyrir sér verður þetta enn eitt árið sem TLC dettur út í fyrstu umferð.
Menn voru hins vegar engan veginn að þeim buxunum að gefast upp. Hrafn sem hafði flogið hátt í sínum fyrsta leik í vikunni á undan þurfti að fara útaf vegna meiðsla og Raggi (bróðir hans Svavars) kom upp á toppinn í staðinn fyrir hann. TLC héldu uppteknum hætti og pressuðu vel Sverrir og Óli Már voru nálægt því að jafna metinn. En það var síðan, eins og oft áður, Óli Már sem dróg vagninn og jafnaði með stórglæsilegu marki af 23 metra færi. Markið kom á góðum tíma 2 mín fyrir hálfleik og akkúrat það sem við þurftum áður en flautað var til seinni hálfleiks.
Staðan 1-1 í hálfleik og í raun hefðum við átt að vera 1-2 yfir en við náðum ekki að nýta okkur yfirburðina sem skildi.
Tvær breytingar voru gerðar í hálfleik, Höski kom á hægri kanntinn fyrir Sverri og Finnur kom inn í bakvörðinn fyrir Svavar. Seinni hálfleikur byrjaði eins og sá fyrri endaði, SÁÁ að elta skugga. EFtir 4 mín í seinni hálfleik var Óli Már aftur á ferðinni með mark af dýrari gerðinni. Óli fékk þá sendingu inn fyrir frá Sigga, dripplaði að endamörkum þar sem hann sólaði tvö á endalínunni og sett´ann síðan fráhjá markmanninum. Einkar glæsilegt mark hjá Óla Má. Eftir þetta datt tempóið aðeins niður en TLC fékk 3 fín færi til að klára leikinn, Raggi, Sverrir og Óli Már fengu allir færi til að innsigla sigurinn en inn vildi boltinn ekki. SÁÁ reyndi að pressa aðeins undir lokinn en höfðu ekki erindi sem erfiði.
Heilt yfir var þetta solid leikur hjá TLC og menn virkilega að spila vel. Mun meiri barátta og stemning var í þessum leik en undanfarna leiki og er þetta það sem koma skal í næstu leikjum. Vörnin var með sterk með Garðar og Jón Fannar í fararbroddi, hrikalega gott að fá Örvar aftur tilbaka og má segja að hann hafi eignað sér vinstri bakvarðarstöðuna eftir frammistöðuna í þessum leik, Svavar og Finnur voru fínir í h.bakv, Sæmi og Siggi voru rock solid á miðjunni og bundu vörn og sókn mjög vel saman og náðu að dreifa spilinu vel og stppa fjölmargar sóknir, Óli Már var sem fyrr óstöðvandi og SÁÁ réðu lítið við hann ásamt því að skora tvö frábær mörk var Óli Sívinnandi og hlaupandi allan leikinn, Sverrir var ekki í sinni uppáhaldsstöðu en komst vel frá leiknum og hefði átt að setja eitt mark, Einar var duglegur, Höski barðist vel, Hrafninn meiddist fljótlega og kom ekki mikið við sögu. Raggi kom með fína innkomu og er í frá bæru formi, verður góð viðbót í hópinn sem er orðinn ansi þunnuskipaður af sóknarmönnum. Róbert kom mjög sterkur inn síðustu 15 mín.
Eina sem vantaði var að klára færin betur til að klára leikinn en það skiptir ekki málið þar sem við unnum góðan sigur og erum komnir áfram í 8 liða úrslitin ásamt; Vængjum Júpíters, Elliða, FC Ögna, Haukar U, Vatnaliljum, Dufþak og Nings/Vatnsberar. Á þessari stundu er enginn óskamótherji, væri bara fínt að fá heimaleik.
Nú bara að gíra sig upp fyrir næstu tvo leiki 23 júli gegn FC FAME og 27 júlí gegn Elliða. Tveir gríðarlega mikilvægir leiki í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni en þeirri baráttu er hvergi nærri lokið.
Bongó litli Bongó
Binnster