Archive for ágúst, 2009

Lokaleikur sumarsins á móti Áreitni

25 ágúst, 2009
Mótherjinn er Áreitni
Fimmtudaginn 27. ágúst
Spilað er á Ásvöllum
Mæting er 18.30 – kick off 19.30
Skilyrði er TOPPMÆTING

BIKARLEIKUR

6 ágúst, 2009

Sælir

Eins og flestir vita þá erum við komnir í 8 liða úrslitin í bikarnum í ár.  Leikurinn er á  sunnudaginn við UFC Ögna.  UFC Ögni er nýtt lið í utandeildinni í ár og hefur staðið sig mjög vel miðað við það. Þeir eru sem stendur í öðru sæti C-riðills. Í bikarnum hafa þeir unnið:

UFC Ögni  – RWS 7-1

UFC Ögni – Kumho 4-3

Þannig að þetta lið virðist vera nokkuð öflugt og er að skora mikið af mörkum 26 í 7 leikjum í deild og 11 í 2 leikjum í bikar.

Við ætlum okkur langt í bikarnum í ár og þurfum því að fá mjög góða mætingu á sunnudaginn kemur og þeir sem komast ekki í kvöld það er skyldumæting á sunnudaginn.

Hvar: Ásvellir, Hafnarfirði

Dagsetning: 9 ágúst, sunnudagur

Mæting: 1800

Andstæðingur: UFC Ögni

Keppni: Bikarkeppnin

Skilyrði: SKYLDUMÆTING

Bongó litli Bongó

8. umferð

4 ágúst, 2009

Sælir

Næsti leikur er á fimmtudaginn á Ásvöllum í Hafnarfirði. Leikurinn er gegn Kærustunni hans Ara sem er í 5 sæti með 9 stig. Við eigum ennþá möguleika á umspils sætinu og því verðum við að vinna þennan leik til að halda þeim möguleika opnum.

Staður: Ásvellir Hafnarfirði

Mæting: 20:00

Mótherji: Kærastan hans Ara