4. umferð TLC – Metró

26 júní, 2009 af fctlc

Sælir drengir, Næsti leikur er gegn Metró á þriðjudaginn kemur 30 júní á Ásvöllum, kl 2100. Metró er með þrjú stig eftir þrjá leiki og þetta gæti orðið snúinn leikur. Það er ljóst að menn þurfa að koma mikið betur stemmdir í þennan leik en í þeim síðasta. Við erum nú með bakið uppvið vegg og þurfum nauðsynlega að klára alla leiki sem eftir er og það er vel hægt ef við spilum okkar bolta.

Koma svo allir að skrá sig á heimasíðunni okkar http://fctlc.wordpress.com/

Hvar: Ásvellir, Hafnarfirði Hvenær: 30 júní – þriðjudagurinn kemur Kl hvað : 2100 Mæting: 20:15 Dagskipun: gott skap og barátta Markmið: 3 fokking stig Rífum þetta upp núna og byrjum þetta mót.

3. umferð: TLC – Kumho

22 júní, 2009 af fctlc

Skrá sig í leikinn drengir

Kosning á manni leiksins móti Vængjunum

17 júní, 2009 af fctlc

Hart barist í Kórnum

17 júní, 2009 af fctlc

TLC lék við Vængi Júpiters síðastliðinn fimmtudag í Kórnum. Fyrirfram var búist við hörkuleik enda Vængirnir núverandi meistarar og TLC með mjög sterkt lið, sennilega sterkasta TLC lið sögunnar. Það var þó enginn klassi yfir liðinu í byrjun enda mættu bæði búningar og boltar aðeins nokkrum mínundum fyrir leik. Það var því engin upphitun að ráði sem gengur ekki gegn liði eins og Vængjunum.
Vængirnir voru gríðarlega sterkir fyrstu 20 mín og hreinlega yfirspiluðu TLC en vörnin og markvarslan hélt. Gummi Steindórs tognaði aftan í læri eftir 10 mín og var það mikil blóðtaka, sérstaklega vegna þess að Trausti var ekki spilfær. Smátt og smátt komst TLC meira inn í leikinn og átti nokkur hálffæri. Staðan í hálfleik 0-0.
Seinni hálfleikur var mun jafnari enda getur ekkert lið keyrt heilan leik eins og Vængirnir gerðu í fyrri hálfleik. Mikil barátta var í leiknum og menn í báðum liðum lögðu allt í leikinn. Vængirnir komust yfir snemma í seinni hálfleik úr fyrsta alvöru færinu sínu. Hættulegasti maður Vængjanna, Guðmundur Auðunsson sleppur inn fyrir og skrúfar boltann í fjærhornið, glæsilega afgreitt. Fram að þessu hafði gríðarlega sterk varnarlína TLC haldið sóknarmönnum Vængjanna algjörlega í skefjum. Eftir markið sótti TLC af meiri krafti og 20 mín fyrir leikslok datt boltinn út fyrir teig eftir hornspyrnu fyrir fæturna á Óla sleggju sem smurði honum í samskeitin, óverjandi. Klárlega eitt af mörkum sumarsins. Þegar 5 mín lifðu af leiknum fengu Vængirnir aukaspyrnu á miðjum vallarhelmingi TLC. Hinn massaði og ljósabrúni senter Vængjanna setti fastan háan bolta inn á markið. Binni ætlaði að slá frá eins og hann hafði þurft að gera mjög oft í leiknum en lenti í samstuði við varnarmann og boltinn endaði í markinu. 2-1 fyrir Vængina. Allt stefndi í svekkjandi úrslit fyrir TLC þegar Siggi klettur vinnur aukaspyrnu á miðjum velli alveg út við hliðarlínu. Hann tekur aukaspyrnuna sjálfur og neglir inn á markteig þar sem Raggi beið og beið áður en hann skallaði boltann örugglega í markið, frábært jöfnunarmark á ögurstundu. Litlu munaði að TLC næði að stela sigrinum þegar Raggi slapp í gegn á síðustu sekúndu leiksins en hann setti botann yfir.
Það er ljóst að bæði þessi lið verða í toppbaráttunni í sumar. TLC er með lang sterkustu varnalínuna og þegar miðjan og sóknin verður búin að spila sig betur saman verður erfitt að eiga við TLC.

Þeir leikmenn sem ég tilnefni í vali á manni leiksins eru:
Jón Fannar
Ingi
Siggi
Raggi
Óli Sleggja

Kosning á manni leiksins er hér að ofan

Kv, Hjalti

2. umferð TLC – Vængirnir 11. júní

9 júní, 2009 af fctlc

Þá er komið að næsta leik og er hann við meistarana frá því í fyrra, nk fimmtudagskvöld. Mikilvægt að við náum góðri mætingu og mætum VEL stemmdir. Leikurinn er í Kórnum Kópavogi og hefst kl 21.00. Mæting um 20.15

Allir að skrá sig.

PS, skv kosningunni á heimasíðunni var Trausti maður leiksins í síðasta leik og óskum við honum til hamingju. Hann hlaut 55% atkvæða eða 6 af 11. Kosning hefði mátt vera betri.

Ég tók að mér fyrsta leikjapistil sumarsins og legg til að Hjalti Gylfason taki næsta pistil. Höfum þetta síðan þannig framvegis að sá sem skrifar leggur til næsta penna.

Maður leiksins TLC – FC Ice

8 júní, 2009 af fctlc

Fyrsti leikur sumarsins.

3 júní, 2009 af fctlc

Fimmtudaginn 4.júní kl.21:00 hefst keppni okkar í Utandeildinni þetta sumarið. Leikið er gegn FC Ice í Egilshöllinni. FC Ice enduðu í 10 sæti í B riðli í fyrra en hafa styrkt sig mikið fyrir þetta tímabil. Við þurfum því að ná saman sterku liði annað kvöld og hefja mótið með stæl. Minni á að þeir sem eiga eftir að greiða gjaldið byrja á bekknum. Vinsamlegast commentið eins fljótt og auðið er hvort þið getið mætt til að við vitum stöðuna og til að við getum stillt upp liði fyrirfram. Mæting er stundvíslega kl.20:15.

Æfingaleikur TLC – Vængir Júpiters

25 maí, 2009 af orvar

Leikurinn er kl. 20:30 og menn mæta tímanlega 19:45-20:00. Leikurinn er væntanlega í Mosó þar sem seinustu æfingaleikir hafa verið.

Þetta er alvöru leikur á móti meisturunum þannig að við þurfum topp mætingu.

Allir að skrá sig.

Æfingaleikur nr. 3 TLC – Henson

18 maí, 2009 af orvar

TLC spilar við Henson á þriðjudaginn 19. maí kl. 20:30 21:30í Mosó.

Búningsaðstaða verður til staðar og allir að reyna að mæta tímanlega til að fara í búninga.

Skráning hérna á síðunni.

Uppfært

Búið að breyta tíman í 21:30. Menn láta vita ef eitthvað breytist með mætingu, annars stendur fyrri melding.

TLC 6 – Metró 3

18 maí, 2009 af orvar

Mættum Metró mönnum í Mosfellsbænum í ágætis veðri þó hvasst hafi verið framan af. Við höfðum á að skipa heldur fámennu (en góðmennu) liði og vorum akkúrat 11.

Lokatölur voru 6-3 okkur í vil að mig minnir og mörkin skoruðu Gummi S 4, 1 sjálfsmark og Trausti með 1.

Maður leiksins var vafalaust spóaleggurinn Ívar Gestsson sem átti afburða leik á hægri kantinum og skilaði hverri frábæru sendingunni á fætur annarri inní teig andstæðingana, eingöngu vantaði hausa til að stanga þessa bolta í netið.

Liðið var svona:

Mark: Robbi

Vörn: Finnur – Garðar – Siggi H – Addi Gísla

Miðja: Ívar – Bjarni H – Vilmar – Óli Steph

Framl miðja: Gummi S / Trausti

Sókn: Trausti / Gummi S

Robbi: sýndi hve “íþyngjandi” það getur verið að búa í London – “fish and chips syndrom” eða hvað ?? – skulum orða það þannig að Robbi hefur átt betri leiki sem útileikmaður.

Finnur: átti prýðilegan leik sérstaklega framan af þegar hann sýndi góða takta fram á við.

Garðar (nýr): átti góðan leik, stór og sterkur strákur þar á ferð sem kemur til með að styrkja liðið treysti hann sér í þetta af fullri TLC alvöru.

Siggi H: skilaði góðum leik.

Addi Gísla: var öflugur í leiknum og sýndi mikinn baráttuanda – sér í lagi í einu tilfelli nánast út við hornfána þegar bakvörður Metró var að rekja boltann og þvílík hætta framundan J þá fórnaði kappinn sér í boltann og nánast tók af sér hnéð – alveg til fyrirmyndar og vonandi verður hann orðinn góður fyrir þriðjudaginn.

Ívar: klárlega maður leiksins þrátt fyrir að þurfa að fara fyrr.

Bjarni H: átti góðan leik á miðjunni og náði vel saman við Vilmar.

Vilmar (lánsmaður á vegum Bjarni H): átti góðan leik á miðjunni og náði vel saman við Bjarna.

Óli Steph prýðilegan leik.

Gummi S: komst vel frá sínu sem fyrr og setti hvorki fleiri né færri en 4 lið, þarf aðeins að stilla miðið og skorar þá 8 í leiknum.

Trausti: átti góðan leik og setti 1.